Leita í fréttum mbl.is

Til er fólk sem lætur sig ekki henda að svelgjast á skinhelgi og gluggaskrautshlutverki sínu

ær1Katrínu Jakobsdóttur svelgist ekki á skinhelgini, hræsninni og gluggaskrautshlutverkinu. Í dag uppgötvaði þessi sérkennilegi lukkuriddari, að það væri unnið ,,stórkostleg" starf á Landspítalanum, en samkvæmt heimildum stakk þetta stjórnmálamannsígildi nefinu rétt sem snöggvast inn á spítalann í morgun. Og satt að segja varð starfsfólk Landspítalans að hlaupa afsíðis til að hlægja að gasprinu í forsætisráðherramyndinni, sem valsaði eins og hræddur hani um gólf spítalans í fylgd heilbrigðisráðherra, sjálfri Swandeesý Sendiherrans, sem hafði það hlutverk í ferðinni að gæta Katrínar, að hún gerði sér ekki óþægilega til skammar frammi fyrir læknum og hjúkrunarliði og draga han burt ef hún færi að bulla fram úr hófi.

Þegar telpurnar úr barnadeild Flokkseigendafélags VG voru horfnar á braut, safnaðist starfsfólk og sjúklingar Landspítalans saman og grenjuðu af hlátri. Og svo var hláturinn innilegur að læknar máttu taka upp sprautur sínar og sprauta nokkra sjúklinga sem voru nær andaðir af óstöðvandi hláturrokum. Það hefði ekki verið hlegið meira á Landspítalanum þó svo skoffínið og uppskafninurinn Bör Börson hefði komið í heimsókn og látið ljós sitt skína.

En svo eru aðrir sem ekki er hlátur í hug og fara að nötra innra með sér af skömm þegar þeir heyra í lukkuriddurum og gáfumennum VG í fjölmiðlum. Þessir ,,aðrir" skilja nákvæmlega ekki hætishót í fólki eins og Swandeesý, Katrínu og fleirum, sem virðast haf gert sér að lífshugsjón að ganga frá vinstripólitík í landinu í eitt skipti fyrir öll með því að hórast opinberlega með Sjálfstæðisflokknum og Framsókn á altari auðvaldsins í helgidómi Mammóns. En Katrínu svelgist ekki á í skinhelginni og blaðurgasprinu og það gjörir Swandeesý ekki heldur, enda er hún vel upp alin af Sendiherranum mikla, sem margir hafa furðað sig á hafi ekki fyrir löngu hreinlega drukknaði í öllum skinhelgisvaðlinum sem honum hefur tekist að dæla upp úr sér.   


mbl.is „Stórkostlegt“ starf á Landspítalanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Held svei mér þá að bæði sjúklingar og starfsfólk sé enn með hláturkrampa og gott ef einhverjir hafi ekki hreinlega þurft á áfallahjálp að halda. Húmörinn er hinsvegar svartur hjá fraukunum tveimur, þó þær skynji það sennilega síðastar. Litla sætan ætlar sér sennilega næst í spássitúr með sjávarútvegsráðherranum niður í Hafró og gapa síðan af aðdáun?. Andskotans hrrrrrræsnin ríður ekki við einteyming.

 Enn sefur gamalt fólk á salernum sjúkrahúsanna og mun áfram gera, þrátt fyrir þessa heimskulegu heimsókn galgopanna, sem blaðra svo mikið, án þess að segja nokkurn skapaðan hlut og smæla framan í myndavélarnar, með krampakenndum sjálfsánægjutilburðum.

 Það bíða jú feitir eftirlaunatékkar.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 11.1.2019 kl. 00:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband