Leita í fréttum mbl.is

Hún reyndi að stoppa hann ef eftir að hann villtist af leið

preÞað var mikið að klerkurinn í Holti kom undan hempunni til bjargar klausturkörlunum sínum frá enn meiri vandræðum. Að vísu munu björgunaraðgerðinar ekki koma að neinu gagni öðru en því að sökkva klausturpaurunum enn dýpra niður í rotþrónna undir klaustrinu, en það verður víst að hafa það. Klerkurinn í Holti er að sögn ákaflega merkur kennimaður. Hann er fyrrverandi héraðprestur Sjálfstæðisflokksins og flutti messur á landsfundum þess flokks helgaðar Mammóni, drotni Sjálfstæðismanna. Svo flaut eitthvað út í fyrir karli, segja óljúgfróðir Sjálfstæðismenn, hann pissaði út og fór að haga sér einkennilega, fékk sokallaðað lukkuriddaraæði eða hreint og beint lukkuriddaraeitrun og fór að stofna sértrúarstjórnmálaflokka. 

Frú Ingveldur reyndi að stoppa klerkin í Holti af eftir að hann villtist af leið. Hún bauð karli sérstaklega í helgarsamkvæmi hjá sér, hvar fyrir var valið lið bestu manna úr Sjálfstæðisflokki og Framsókn. En séramaðurinn frækni var greinilega kominn með lukkuriddaraæði svo frú Ingveldur greip í hnakkadrambið á honum og kastaði honum inn í miðstöðvarkompunar til Bryjars Vondulyktar og Indriða Handreðs og þar fékk sá gamli aleilis kröftuga tilsög í guðsspjöllunum og endirinn varð sá að síra Dóri gat forðað sér, mjög illa til reika, frá þeim félögum, Vondulyktinni og Handreðnum, og lét sig hverfa út í myrkrið. Svo fór hann að messa hjá frú Sæland og Kalli Gauti og Láfi Ísleifs þjónuðu fyrir altari.

Og enn hefir síra Gunnsi fært sig upp á skaftið. Nú telur hann sig orðinn svo heilagan, að hann geti samþykkt hvaða drykkjuraus sem honum sýnist og eru þar ölæðisöfgar Kalla og Láfa á klaustrinu ekki undanskyldar. Þar með er ljóst að roskni kirkjuhöfininn tekur heilshugar undir með Kallaboy þegar hann kallaði veslings frý Sæland ,,kérlíngarklessu", hvað sem sá orðaleppur annars nákvæmlega þýðir. Og væntanlega tekur hann líka undir og staðfestir nærgætna orðræðu og samtal meðlima Sigmundarflokksins um ,,eyjar" og ,,tíkur" og fleira geðugt sem samkvæmi Sigmundar lét sér um munn fara á glaðri stund í klaustrinu.  


mbl.is Tekur undir gagnrýni Karls Gauta á Ingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Tekur nokkur mark á síra Baldvin lengur ?

Níels A. Ársælsson., 13.1.2019 kl. 13:13

2 Smámynd: Aztec

Hér er verið að rífast út af einhverju smotteríi sem engu máli skipta, vegna sérhagsmuna. Stormur í tebolla.

Fyrst vil ég segja að ég hef aldrei greitt og mun aldrei greiða eftirfaranda flokkum atkvæði vegna ýmissa pólítískra og siðferðislegra ástæðna, sem öllum ætti að vera ljósar: xB, xC, xD, xP, xS og xV.

Ég hef tvisvar kosið Flokk Fólksins fyrir mörgum árum og tvisvar Miðflokkinn að undanförnu. Ég ákvað strax og xF komst á þing og Ólafur Ísleifsson gerði þá reginskyssu að styðja hryðjuverkaflokkana (Pírata og Samfó) í að fordæma Trump þegar hann ákvað að flytja sendiráðið til höfuðborgar Ísraels, að hætta að kjósa þann flokk.

Eftir það kaus ég Miðflokkinn þótt mér væri meinilla við að laumu-ESB-sinninn Gunnar Bragi sem skaðaði hagsmuni þjóðarinnar með viðskiptabanni væri í flokknum, enda er hann betur kominn í Samfylkingunni sem ætti að taka hann upp á sína arma. En Framsóknarmenn voru guðslifandi fegnir að losna við hann á sínum tíma, einmitt vegna þess máls.

Nú þegar búið er að henda Ólafi og Gunnari út úr flokkunum og hreinsa þannig til, þá sit ég eftir með þetta dilemma: Á ég að kjósa Flokk Fólksins eða Miðflokkinn í næstu þingkosningum?

Áfram mun ég aðvitað kjósa Vigdísi í borgarstjórn 2022, að sjálfsögðu (vonandi gengur Sveinbjörg einnig til liðs við flokkinn). Ég spái núverandi minnihluta framgangi eftir að gjörspillti meirihlutinn með Degi í broddi fylkingar hroðalegu fylgistapi. Þrjú ár eru til stefnu, ég er viss um að fleiri ormagryfjur verði opnaðar á næstu þrem árum.

Aztec, 13.1.2019 kl. 13:36

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ef síra Baldvin sér sig tilknúinn að skipta sér af síra Gunnsa í Holti og klausturdrengjunum þá mun ekki standa steinn yfir steini hjá Fokki Fólsins og Sigmundarflokknum. Og síra Gunnsa mun síra Baldvin bannfæra eins og að drekka vatn, ef hann er ekki nú þegar búinn að svipta hann öllum réttindum sakramenntanna.

En Aztec minn, í guðanna bænum vertu ekki sona neikvæður og skapvondur. Hafðu heldur gaman af klausturflokkunum og leikurunum þeim.

Jóhannes Ragnarsson, 13.1.2019 kl. 15:20

4 Smámynd: Aztec

Jóhannes, þú verður þá að afsaka það, að sannleikurinn og raunveruleikinn eru svona neikvæðir.

laughing

Aztec, 13.1.2019 kl. 19:06

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ja, ekki vil ég nú meina að drykkjulætin á klaustri hafi svo neikvæð. Skemmtigildi þeirra vóru ótvíræð og gauragangurinn á eftir óborganlegur.

Jóhannes Ragnarsson, 13.1.2019 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband