Leita í fréttum mbl.is

Ahh, þetta var bara hann Brynjar greyið, vér fyrirgefum honum öll

ing16Æ þetta var nú bara hann Brynjar greyið Vondalykt, dálítið illa fyrirkallaður, sem sparkaði í bílinn og tók í hnakkadrambið á konunni. Vér verðum að vera kristilig í anda og fyrirgefa vórum góða bróður þennan misskilning og þessi miss-misstökk. Ef til vill hefir bifreiðin verið að þvælast fyrir Vondulyktinni og hann tímabundinn; hann þarf að sinna mörgum skyldum á dag hann Brynjar þótt hann sé í annarlegu ástandi, sem ekkert er víst að verið hafi. So hefir konan vafalaust skrúfað niður rúðuna og farið að senda honum tóninn, kallað hann mörgum óviðurkvæmilegum nöfnum og haft jafnvel í hótunum að brjáota rúðu í eldhúsinu hjá frú Ingveldi með grjótkasti. En eins og ég segi: Hvað vitum við; hvað vitum vér.

Nú kemur í hug gamalt atvik, sennilega frá því kringum aldamót, og fjallar um þegar frú Ingveldur vóð út úr bifreið sinni, en hún hafði stöðvað hana á gatnamótum við rauðu ljósi, reif upp hurðina á bifreiðinni sem var fyrir aftan hennar og dró ökumannin, konu nokkra, út með valdi og barði hana. Síðan seildirs frú Ingveldur aftur inn í bifreið konunnar og dorgaði út eins eldri frú, sennilega móður konunnar, og flengdi hana á bert rassgatið farman í öllu fólkinu sem átti leið þar um og það var margt fólk. Þá var ekkert eftir nema ganga hring í kringum bifreið hinna óforskömmuðu mæðgna og berja grjóti, vel og vendilega.

pol1Þegar Hálfdán varðstjóra bar að gatnamótunum til að skakka leikinn var frú Ingveldur á bak og burt so Hálfdán varð að handtaka mæðgurnar, aðra með buxurnar á hælunum, hina með blóðnasir, brotna framtönn og í kjólgopa, flengrifnum frá hálsi og niður fyrir nafla. Og í fangaklefanum veitti Hálfdán varðstjóri konugörmunum slíka resingu að lengi verður í minnum haft á lögreglustöðinni; ekki var nóg með að ópin og öskurhryglur þeirra mæðgna heyrðust út á götu, heldur var aungvu líkara en Hálfdán varðstjóri hefði velt sér upp úr gaddavísrflækju, svo var hann grátt leikinn af klóm og tönnum mæðgnavilludýranna.  


mbl.is Gekk í skrokk á konu á Háaleitisbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband