Leita í fréttum mbl.is

Sest að í Rauða hverfinu í Amsturdammi

rat3Auðvitað er mikið í það varið að Marell skuli vera ákveðinn í að láta skrá sig til heimilis í Rauða hverfinu í Amsturdammi. Marell hefir lengi verið í tölu betri borgara hér í kuldanum á Íslandi og því vel skiljanlegt að hann vilji hasla sér völl á hlýlegum stað með þjónustu í hans anda. Fyrir þá sem ekki vita, þá er Marell af Skúfsárætt, en í þeirri ætt eru stórmenni eins og Kolbeinn Kolbeinsson, Brynjar Vondalykt og Indriði Handreður, að ógleymdum stráknum Óla Apaketti. Allir hafa þessir ættingjar átt sína góðu spretti í Rauða hverfinu, sem og Herbertsstrasse.

Þegar Marell er af landi fluttur hægist vissulega um hjá frú Ingveldi og lögreglu höfuðborgarinnar, því Marell, sem laungum sá um aðdrætti fyrir frú Ingveldi, hefir talist einn af helstu góðkunningjum lögreglunnar. Eitt sinnið elti fjölmenn lögreglusveit þennan kunningja á fjölmörgum lögreglubifreiðum, fjórhjólum og tveimur þyrlum hann að klettaborg nokkurri, en þar inn í hvarf Marell og sá lögreglan ekki meir af vininum þann daginn.

Þá vakti ekki litla lukku þegar Marell brá undir sig betri fætinum og stal öllu messvíninu frá heilu kirkjuþingi, röskum fimmhundruð lítrum, og faldi það í bílskúrnum hjá frú Ingveldi og Kolbeini. Umrætt messuvín fannst aldrei, því það hverf á eini helgi ofan í ginið á samkvæmisgestum þeirra hjóna. Það var nú það. En Marell, blessaður kallinn, er sem sé í þann veginn að koma sér fyrir í hlýjunni í Rauða hverfinu í Amsturdammi.


mbl.is Stefna á skráningu í Amsterdam
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband