Leita í fréttum mbl.is

Mæling á gáfnafari þjóðarinnar. - Skýr falleinkunn

hátíðSkoðannakannanir um fylgi stjórnmálaflokka á Íslandi er fyrst og fremst mæling á gáfnafari þjóðarinnar, fattleysi og nautheimsku. Íslendingar hafa alltaf skorað hátt í sona könnunum, ekki síður en í kosningum, og má með sanni segja að þjóðflokkurinn, sem hér býr, sé með alvitlausustu þjóðarbrotum sem til eru á jörðinni; meira að segja apakettir og hundar standa Íslendingum framar gáfur og annað atgerfi varðar. Ekkert hefir þjóðin braggast við meiri menntun og hærra menntunarstig, eins og sperrileggirnir kalla það, so við liggur að ætla megi að svokölluðu menntun sé fyrst og fremst skaðmenntun, sem telst grátt gaman. 

Það er eitt fyrir sig, að fáráðlingaflokkur eins og Píratar séu hér við lýði, hafi fulltrúa á Alþingi og 15% í skoðannakönnun. Annað mál er að djöflamergir eins og samtökin sem kenna sig við sjálfstæðið og viðreisn séu með yfir 30% fylgi, en þessháttar frammistaða íslensku þjóðarinnar bendir ótvírætt til að Íslendingar séu ekki aðeins heimskir og sé fyrirmunað að setja hluti í samhengi heldur séu þeir í þokkabót illgjarnir, gáðugir og haldnir óstöðvandi glæpahneigð.

Þó tekur út yfir allan þjófabálk að skrípalingahópur, þekktur af hneykslanlegur framferði og stórbrotinni reginheimsku skuli hafa bætt við sig frá síðustu könnun hafi nú heil 10% og 0.2% til viðbótar! Já, andlegri heilsu þjóðarinnar hefir hrakað svo hræðilega á síðustu árum að ekki getur annað verið en að endalokin séu skammt undan. Svo annarleg, ánaleg og blábjánaleg er niðurstaða könnunarinnar að heimskustu hundar mundu blóðskammast sín ef þeir ættu í hlut. En Fjandanum er skemmt. 


mbl.is Píratar og Miðflokkur bæta við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Ertu þá ánægður með að Sósíalistaflokkurinn komst á blað, þótt öllum öðrum sé ljóst að þegar sósíalistar taka völdin, þá fylgja hörmungar, sbr. Venezuela.

Aztec, 11.4.2019 kl. 18:59

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já, þú átt við að ef sósíalistar tækju völdin á Íslandi þá mundu vinir þínir í USA og ESB skella á okkur svæsnum viðskiptaþvíngunum, eins og þeir hafa leikið gegn þeim þjóðum sem makka ekki rétt í pólitíkinni að þeirra mati?

Jóhannes Ragnarsson, 11.4.2019 kl. 19:34

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er ekki langt síðan ágætur sálfræðingur fékk nóbelsverðlaun í hagfræði fyrir að sýna fram á að fólk sé fífl. En hann hafði aldrei komið hingað. Þá hefði hann væntanlega verið búinn að hengja sig áður en honum auðnaðist að klára rannsóknina embarassed

Þorsteinn Siglaugsson, 11.4.2019 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband