Leita í fréttum mbl.is

Það verður að refsa helvítunum grimmilega so þau muni eftir því

kapital11Það má nú varla minna vera en að Höturum verði refsað grimmilega, enda gerðu þessir drengir sér lítið fyrir og svívirtu hina mildu og góðu borgarastétt Vesturlanda með því að draga úr pússi sínu, og það á sviðinu í Telavíf, fána Palestinumanna, erkióvina allra frjálsra og friðelskandi landtökumanna í Mið-Austurlöndum. Og í þokkabót berast nú fréttir, víðsvegar úr Evrópu, einkum gömlu nýlenduveldunum, og Bandríkjunum, af sannkristnum mammonsistum sem lagstir eru í rúmið út af fólskubragði Hatara. Þess má geta að þetta sama fólk hefir aldrei lagst í rúmið út af skefjalausum manndrápum hinna blóðþyrstu herja auðvaldsins á Vesturlöndum.

En Höturum verður að refsa. Ef Íslendingar, með ríkisstjórn sína í broddi fylkingar, gera það ekki sjálfir og af sjálfsdáðum munu frelsishetjurnar í NATO fá þá framselda og þá verða þeir færðir í fangabúðir bandaríkjastjórnar í Guantamó, eða hvað hún nú heitir pyntingastöðin þeirra. Varðandi refsingu hér heimafyrir þá kemur sterkt til álita að grafa djúpa gryfju, helst við túnfótinn á Bessastöðum, í líkingu við svarholið, sem þar var og lýst er í Íslandsklukkunni, en þar var Jón Hreggviðsson geymdur þangað til að átti að embætta hann á höggstokknum á Þingvöllum.

Og þar eð hatarar eru ekki minni illræðismenn og óþokkar er Jón Hreggviðsson, Júlíus Assange og Sigurður Gottsvinsson þá eru þeir ekki hæfir innan um heiðarlega glæpamenn í okkar fangelsum. Menn verða sem sé að læra að haga sér skikkanlega gagnvart péníngahórunni miklu, heimsvaldasinunum, auðvaldi borgarastéttarinna á Vesturlöndum, ef þeir ætla að lifa af hér í heimi. Ríkisstjórn Íslands veit upp á hár hvað til hennar friðar heyrir og því munu Katrína róttæka, Bjarniben og Framsóknarbolinn, ég man aldrei hvað hann heitir, taka á móti Hataralýðnum á Keflavíkurflugvelli og smeygja sjálf handjárnunum á úlnliðina á þeim, náttúrlega að því tilskyldu að Hatursbörnin sleppi frá Ísrael, en hvað það varðar er allt á huldu sem stendur. 


mbl.is Höturum verður mögulega refsað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Tilhlýðileg refsing fyrir þessa öfugugga og illþýði, Hatara, er að taka öll stigin af þeim, þó fá séu og færa þau Ísraelsmönnum sem skaðabætur fyrir það að þessi ruslaralýður sem hafa kastað skömm og vanvirðingu yfir íslenzku þjóðina misnotuðu atburðinn til að sýna morðóðum hryðjuverkamönnum stuðning. Líka verður að refsa þeim fyrir að kunna ekki að syngja.

Það getur vel verið að vinstrivitleysingarnir á RÚV séu upp með sér, en ég tel að meirihluti íslenzku þjóðarinnar hafi fengið varanlegan aulahroll.

Aztec, 19.5.2019 kl. 12:35

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Verður refsingin einhliða?

Guðmundur Ásgeirsson, 19.5.2019 kl. 12:39

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mér þykir einhlýtt að refsingin verði einhliða, snörp og þéttingsföst, en líka langdregin. Eða hvað finns ykkur?

Jóhannes Ragnarsson, 19.5.2019 kl. 12:58

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég sé að Azteki er nóg boðið og hefir komið sér upp hinu rétta hugarfari. 

Jóhannes Ragnarsson, 19.5.2019 kl. 13:00

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hvað með Madonnu?

Guðmundur Ásgeirsson, 19.5.2019 kl. 13:18

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Madonna er náttúrlega skelfilegt dæmi og tilheyrir varla okkar tilverusviði.

Jóhannes Ragnarsson, 19.5.2019 kl. 16:10

7 Smámynd: Aztec

Guðmundur, rétt athugað. Madonna (Maria Louise Ciccone) kann ekki að syngja (rödd hennar spannar eina áttund). Hún kann aukinheldur hvorki að dansa né leika.

Og ég mun aldrei fyrirgefa henni fyrir að draga lag Dons MacLean "American Pie" niður í svaðið.

Við skulum spyrja Jóhannes hvernig eigi að refsa þessu fyrirbæri sem heldur að oddhvassir brjóstahaldarar geri hana að betri söngkonu.

Aztec, 19.5.2019 kl. 16:19

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mér skilst að Madonna sé elskuð og dáð út um allan heim og sé af þeim er til þekkja álitin stór kona og mikil, þrátt fyrir að hún kunni ekki að syngja, dansa eða leika, samkvæmt því sem Aztec segir um han hér að ofan.

Jóhannes Ragnarsson, 19.5.2019 kl. 16:58

9 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég var ekki að meina sönghæfileika Madonnu, sem fór reyndar lítið fyrir þetta kvöld, heldur birtingu á umræddum fána í atriði hennar. Hver verður refsingin fyrir það?

Guðmundur Ásgeirsson, 19.5.2019 kl. 21:14

10 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er erfitt að segja til um hvaða refsing Madonnu er búin fyrir Palestinufánann. Refsingar Ísraela eru gjarnan að senda dulitla eldflaug í í hausin, nú eða hreinlega í afturendann, á þeim sem móðgaði þá eða skapraunaði. Madonna þarf því ekki að verða undrandi þótt hún fái óforvandis flugeld í hnakkann og hárið á henni brenni upp til agna. 

Jóhannes Ragnarsson, 20.5.2019 kl. 16:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband