Leita í fréttum mbl.is

Þá einum er steypt þá annar rís - og allt verður gott í paradís

xdMiðað við umfangsmiklar umbúðir Dómsmálaráðuneytisins þá er ekki annað að sjá en farið sé að syrta heldur betur í álinn fyrir mister Johannessen. Málum er nú svo illa háttað, að dómsmálaráðherra á einungis eftir að slá ríxlögreglustjóra mister Johannessen af og reka hann á fjöll, líkt því er bændur reka sinn geldfénað upp á afréttir. Það má í sjáfu sér segja, að það verði mikill héraðsbrestur þegar hinn mæti foringi fellur af stalli, en í leiðinni getur hvur maður huggað sig við, að alltaf má fá annað skip og annað föruneyti.

Það er happ í mótlæti að eiga annann eins höfuðsnilling suður með sjó og hinn frækna mann, Stjörnusýslumanninn Stones í lúðrasveitarbúningnum sínum. Því þegar búið verður að smeygja mister Johannessen úr sínum lúðrasveitabúningi og stugga við hönum upp fyrir efstu fjallsufsir, þá munu dómsmálaráðherra og forsætisráðherra leiða Stjörnusýslumanninn millum sín inn á skrifstofusali ríxlögreglustjóra og setja hann í embætti; fánaberi við athöfnina verður forseti Alþingis og hann mun einnig þjóna fyrir altari.

jagger og óliVið vitum á þessari stundu so ósköp lítt hvað verður um mister Johannessen eftir að honum verður vikið úr embætti og út í óvissuna. En það verður gaman að fylgjast með Stjörnusýslumanninum Stones þegar hann verður farinn að elta glæpamenn sem ríxlögreglustjóri og trútt um að margur skálkurinn megi fara að fara með bænirnar sínar. Um hríð hefir verið legið í mister Johannessen að reisa, í krafti embættis síns, gálga á góðum stað, Austurvelli eða Laugardalsvelli, til hengs fyrir afbrotahunda, en án árangurs. Nú ætti að rætast úr þessu spursmáli fyrst mister Johannessen verður settur af og Stjörnusýslumaðurinn krýndur í hans stað.  


mbl.is Bréfin litin alvarlegum augum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband