Leita í fréttum mbl.is

Ef menn vanda ekki til drauma sinna

operaÞað var mikið að andsvítans Göflurunum hugkvæmdist að stjörnufæra hann Bó sinn niður í gangstétt og láta síðan hvurn mann um að traðka á honum, festa við hann togleðursslummur og jafnvel pissa á hann á tyllidögum. Já, kæru vinir, svona eru Hafnfirðingar og við því er ekkert að segja eða gjöra. Svo má vel vera að Gaflararnir ætli að gjöra narr að Bó sínum, sem er þeirra lang-besti maður, og kveikja á sjörnuljósi fyrir hann í Strandgötunni eins og hann sé ofdekraður krakkaskratti á gamlárskvöld.

Best gæti ég þó trúað að Gaflararnir ætli bara að láta tattúvera stjörnu á aðra rassakinnina á kauða og halda síðan sýningu á afrakstrinu í Bæjarbíóinu. Já, þeir ku gamansamir Gaflararnir og mikið upp á að framkvæma fíflagang í viðurvist vitna. Þegar Bó verður orðinn stjarna í gangastéttarhellu, sem hundar Gaflaranna munu spígspora yfir með aðra afturlöppina á lofti, þess albúnir að láta til skarar skríða gegn söngmanni Hafnarfjarðar, eða öllu heldur stjörnunni af söngmanni Hafnarfjarðar. Og álbrækjan úr álhörmunginni í Straumsvík mun leika við stjörnuna í stéttinni þar til hún verður upp eydd, búin, piss, fuff.

Eina nótt, þá skammdegi var, dreymdi Kolbeini Kolbeinssyni að hann væri á konsert hjá Bó og Kidda Konn frá Akureyri. Kolbeinn hrökk upp með andfælum, nær kafnaður af skelfingu, og síðar, þann sama morgun, lá Kolbein niðurnjörfaður með leðurólum, spennum og járnum á rúmfleti ríkisins í gula húsinu með rauða þakið á þeim stað í Reykjavík sem heitir inni í Sundum. Það vildi svo vel til að Gottfreð Gottfreðsson læknir sá um vaktina í gula húsinu og varð afar glaður þegar þeir komu með Kolbein Kolbeinsson í þessu líka sturlaða geðrofi; enda sparaði dr. Gottfreð ekki gumsið í sprautunni við Kolbein og tæmdi í botn, en Kolbeinn brotlenti af slíkum krafti að aungvu mátti muna að ekkert væri eftir af honum annað en froða. Svona getur farið, ef menn vanda ekki til drauma sinna og láta karla eins og Bó og Kidda Konn ryðjast inn í draumaheiminn eins og þegar hrútar hlaupa út úr stíum sínum á vorin. 


mbl.is Bo fær stjörnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband