Leita í fréttum mbl.is

Þeir hafa lengi verið til vandræða

fluÞeir svensku hafa lengi verið til vandræða, og nú hafa þeir tekið upp eftir Rússum að fljúga blindfullir stórum farþegaflugvélum. Fyrir skömmu tókst góðgjörnum mönnum úr farþegahópi sænskrar flugvélar að yfirbuga drukkna áhöfn vélarinnar og snúa henni á rétta braut, en flugvélin stefndi hraðbyrir beint út úr gufuhvolfi jarðar, samkvæmt ákvörðun flugstjórans. Ef ekki hefðu verið djarfir kunnáttumenn meðal farþega væri flugvélin á leið út úr sólkerfinu, ef hún væri þá ekki búina að rekast á aðvífandi vígahnött.

Nú er ástandið í Svíþjóð með þeim hætti, að stjórnvöld eru alveg við það að loka öllum flugvöllum landsins og kyrrsetja öll sænsk loftför, hvar sem þau eru stödd í heiminum, vegna fullra flugstjóra og enn fyllri flugfreyjum. Og margar sögur eru í gangi núna um drykkjulæti um borð í sænskum flugvélum og fæstar geðugar. Farþegi í háloftunum, sem þurfti að bregða sér á toilet til að gjöra bæði meira og minna, kom að yfirflugstjóranum og yfirflugfreyjunni í heldur óviðeigandi stellingum um leið og hann opnaði dyrnar á taðhúsinu; og þau voru svo andskoti augafull að þau ultu eins og dauðir kartöflupokar fram á gang um leið og opnað var. Þá létu flugstjórar annarrar sænskrar flugvélar flugfreyjurnar færa sér saklaus hjón fram í stjórnklefann til þess að þeir gætu nauðgað þeim á óvenju svínslegan hátt.

Fyrst svona er í pottinn búið hjá þeim svensku er sjálfhætt fyrir þá að stunda flugvélaútgerð, en fara þess í stað að ferðast á hestum eins og villtir forfeður þeirra. Vér sjáum fyrir oss sænska berserki norðan úr jötunheimum koma ríðandi á sænskum hesttruntum og herja á ósæmilegan hátt að Norðmönnum og Dönum í því augnamiði af hafa af þeim lönd, konur og þræla. Það er sem maður segir alveg ógurlegt ástand á þeim svensku og brátt rekur að því að innflytjendur frá suðrænni stöðum leggi á flótta undan þessum brennivínsóðu skepnum.  


mbl.is Bylgja ölvunarmála hjá SAS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Við bíðum þess bara, með öndina steikta í hálsinum, að velviljaðir, velvopnaðir múhameðstrúarmenn yfirbugi sauðdrukkna sænska flugstjóra og fljúgi vélum þeirra til helvítis, en endi sjálfir í faðmi allt of margra hreinna meyja hjá fjandanum Múhameð í því áfengislausa himnaríki sem hann hefur fyrirbúið þannig skálkum.

Þorsteinn Siglaugsson, 22.7.2019 kl. 00:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband