Leita í fréttum mbl.is

Hvernig er hægt að vera á sömu blaðsíðunni ef aungin blöð eru í bókinni?

fleng.jpgTil að bók geti kallast bók verða að vera blaðsíður í henni, um slíkt er ekki að ræða í Píratabókinni; að vísu er kápa, með smábarnalegum frösum utan á, og kjölur, brotinn og vesældarlegur. Þannig lítur lífsbók Píratanna út, gjörsamlega jafn tóm og þessar fáu raunarlegu hræður sem þykjast vera einhverjir Píratar, en láta fyrirberast, með alla sína tómhyggju og rugl, á klafa kapítalismans og ný-frjálshyggjuvaðalsins.

Nei, Píratarnir eru ekki á neini blaðsíðu þar eð blaðsíðum er ekki til að dreifa í þeirra bókum. Þrátt fyrir það sýna fylgismælingar ítrekað að 10-15% kjósenda eru svo kolruglaðir og staurblindir á íslenska pólitík að þeir segjast muni kjósa þessa hlandaulahersingu í almennum kosningum. Töluvert hefir verið um það rætt að Miðflokkurinn sé flokkur ósiðaðra hálfmenna og andlegra auðnuleysingja, sem er auðvitað rétt, svo langt sem það nær. En ef Miðflokksfólk eru ósiðaðir hálfmenn og andlegir auðnuleysingjar í þokkabót, þá eru Píratakálfarnir það líka; samanlagt hafa þessir eðjótahópar um það bil fjórðung þjóðarinnar á bak við sig, sem sýnir í hvaða ógöngur íslenska þjóðin er hvað andlegan þroska varðar.

strandMeð aukinni menntun fer þjóðinni hratt hrakandi hvað andlegt atgerfi og raunverulegt vit. Með innreið ný-frjálshyggjunnar á níunda áratugnum var grunnurinn lagður að hinni andlegu niðurlægingu, en frekju, yfirgangi, gjárglæfrum og siðblindu gefinn laus taumurinn og eftir sitjum við með samfélag sem minnar eina helst á illa leikið skipsflak á strandstað. Þessum andlegu og efnislegu hryðjuverkum nýöfrjálshyggjunnar hefir þjóðin svarað með því að stofna hvurn vitfirringaflokkinn af öðrum, hvern öðrum óheiðarlegri og heimskari; þjóð sem stofnar og kýs blekkingarusl á borð við Pírata, Borgarahreyfinguna, Viðreisn, Bjarta framtíð og Miðflokk ber þess merki að hún sér ekki handa sina skil, veit þaðan af síður hvað á hana stendur veðrið og velkist um í hugmyndaheimi ný-frjálshyggjunnar eins og höfuðsóttagemlingar á síðasta snúningi.


mbl.is Valdið hverfur ekki með formannsleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband