Leita í fréttum mbl.is

Hreyfingin framboð og krataeðliskújóninn Day Bee Ekkerts (Nothing)

VargurinnMaður er nefndur Day Bee Ekkerts (Nothing), og er auðsjánlega núll og nix frá náttúrunnar hendi. Þessi maður slæddist inn á gafl hjá krataeðlissjúklingunum, með öðrum orðum: Samfylkingunni. Sem stjórnmálamaður er Day Bee á pari við Hanez Holmestone og Eric Bergmann og mun líklega aldrei verða nokkuð úr pilti annað en skjátan ein. Þenna kall er víst Bjarniben búinn að gjöra að sínum ármanni og ætlar að moka skattfé fátæks almennings í eitthvert rugl, sem Day Bee hefir ekki nokkurt vit á.

Ekki gera Sjálfstæðismenn sér fyllilega grein fyrir hvað þetta örlæti Bjarnaben á að fyrirstilla og eru helst á því að B.Ben sé búinn að kaupa Day Bee og ætli að gera götutrúð úr essu sérlega menni. Ef Bjarnben hefir keypt Day Bee, þá getur hann auðvitað selt hann aftur. Í gamla daga hefði Bjarni selt hann hollenskum duggurum, sem hefði brúkað Day í beitu.

Svo er þessi Day víst so ógn umhverfisvænn og gætir þess að láta hvurgi kolefnisspor sjást eftir sér á víðavangi. Við munum flest eftir kolefnisporinu góða á Bakka við Skjálfandaflóa, sem græna slepjan hans Stenngrims kom á laggirnar. Til dæmis kom Katrín litla fram á almannafæri, sótug frá toppi til táar, rétt eins og hún væri nýkomin úr kolanámu, eða hefði skriðið onum reykháf. Eftir það heitir flokksnefnan hennar og Stenngrimms og Swabbófjölskyldunnar ,,Hreyfingin framboð" og er þaðan í frá laus við vinstri stimpilinn og græna ónefnið. 


mbl.is „Þetta snýst að mörgu leyti um lífsgæði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband