Leita í fréttum mbl.is

Og óhræsin eru boðin og búin að krossfesta Gretu eða branna hana á báli

xb7.jpgÞau hafa aldrei látið á sér standa óhræsin, sem ætíð eru boðin og búin að ráðast á messíasana með lygum, dylgjum og morðvopnum. Og ekkert vantar upp á að óhræsin haldi því að heiminum að þau séu sérlegir verndarar friðar, frelsis, mannréttinda og mannúðarhyggju; það gera þessi óbermi með bros á vör, rétt á meðan þau vaða með rányrkjuklær sínar um öll foldarból eða lauma á stað stríði í heimshluta sem sem er svo óheppinn að hafa til dæmis olíu eða aðrar auðlindir innan sinna landamerkja. Og aldrei hefir neitt aftrað heimsvaldasinnunum ástúðlegu að bera fé á fólk, múta því, gera það að sömu skepnum og þeir eru sjálfir.

Mannkynssagan er yfirfull af sögum af svívirtum messíösum, sem höfðu unnið það eitt til sakar í augum borgarastéttar allra alda að segja satt. Messíasarnir hafa verið krossfestir, hengdir, brenndir á báli, skotnir, sveltir í hel o.s.frv. Og broddborgararnir hafa getað lagst rólegir tilhvílu að kvöldi, glaðir eftir velheppnað dagsverk, sem gat hafa verið farsæl brenna á afburðagreindum hugsuði og mannvini.

Í dag eigum við Gretu Thunberg, sannarlega góðan fulltúa þess besta sem mannlegt samfélg hefur upp á að bjóða. Hún gengur hugrökk til orrustu við afturhaldið, íhaldið og nautheimskt gæðgissamfélag hinna réttlátu, fræðimannana og Faríseana. Og auðvaldið, vestrænu frömuðurnir, sem eru svo grátklökkir af manngæsku, frelsi og kristnihaldi, var heldur ekki seint á sér að skera upp herör gegn unglingnum sænska, sem gengið hefir fram fyrir skjöldu fyrir jörðina og lífið á jörðinni. Veifandi krossum, bálköstum, gálgum og höggskokkum framan í Gretu Thunberg, asamt háði, illgirni og hatri, reynir auðvaldið að kveða Gretu niður. Jesús Kristur var ekki kveðinn í kútinn af valdamenningu síns tíma svo það varð nauðsynlega að krossfesta hann. Jóhanna af Örk, sem gerðist frelsishetja á Frakklandi eftir fá innlástur af Guði, hana brndu þeir á eldiviðarhlaða eins og óætan kjúkling. Svona má lengi upp telja. Nú er að sjá hvað auðvaldið, þessi grimmi og ógeðsleg fylginautur mannkynsins, gefur Gretu Thunberg langan tíma áður en það lætur hana farast af slysförum, því auðvaldið er so gott og so mannúðlegt að það þorir ekki lengur að krossfesta og brenna messíasana að viðstöddu fjölmenni.    


mbl.is Segja Gretu Thunberg „truflaðan Messías“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Freysteinn Guðmundur Jónsson

Greta er einstök og lætur sem ekkert sé um gagnríni. En það er sorglegt að vel menntað fólk, stjórnmálamenn/konur, þjóðhöfðingjar, forsvarsmenn Alþjóða Gjaldeyrissjóðsins, SÞ, forsvarsmenn Microsoft og fl. sjá tilgang í að ráðast á Gretu Thunberg. "All to gether now" sungu Bítlarnir. Það er komið að því á ný.

Freysteinn Guðmundur Jónsson, 28.9.2019 kl. 20:06

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Já þessi viðbrögð elítunnar eru afar sérkennileg, blátt áfram heimskuleg.

Jóhannes Ragnarsson, 29.9.2019 kl. 11:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband