Leita í fréttum mbl.is

Hörmuleg kérlíng sem hrín eins og yrðlingur

dollHörmuleg kérlíng Þorsteinn Víglundsson og hrín eins og yrðlingur. Og með leyfi að spurja: hvur hleypti þessu illyrmi inn á þing? Varðandi framhleypni hans hlálega í þinginu í dag, þá er ekki með öllu ljóst hvort þingkonan vill frelsa mannanöfnin eða ekki. Til dæmis er nafnið Þorsteinn afar ófrjálst nafn og stirt. Þor-steinn þýðir vitaskuld ,,steinn sem þorir" og þarf ekki að hafa fleiri orð um það. 

Þó er annað verra við upphlaup Þorsteins, en það er sú staðreynd að hann fór ódregilegum hönfum um dómsmálaráðherra, sem er viðkvæmur drengur, grátgjarn og huglaus. Og að aunginn sé í þinginu, sem gerir sér grein fyrir og sér yfirgangi karlsins við hið fölva humarblóm, er alveg hræðilegt. Ef einhver ábyrgur maður væri á þingi hefði hann þrifið harkalega í hnakkadrambið á Þorsteini og kastað honum út; soleiðis var alltaf gert við hundinn í sveitinn þegar hann reyndi að ráðast á köttinn.

Æ, þá man ég eftir bölvaðri slepjunni honum Arinbirni, frænda Kolbeins Kolbeinssonar. Það var Arinbjörn sem vóð inn hjá betra fólki, sem kom honum ekki við, og stal steikini úr ofninum og öllu hvítvíninu úr skápnum, en gaf hundinum humarinn, sem hann fékk skitu af. Aðvitað var Arinbjörn allur á bak og burt þegar heimilisfólkið rankaði við sér. Og helvítið át steikina bak við kaupfélagið og þambaði hvítvínið þar til hann stóð á blístri og meig inn um skráargatið heima hjá kaupfélagsstjóranum. 


mbl.is Barnaskapur og sóun á tíma þingsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hjó eftir því að þorsteinn segir að það sé slæmt að einstaklingar fái ekki að ráða egin nafni. Hér er um ómálga bærn að ræða sem ráða engu um þetta hvort sem þetta er gefið frjálst eður ei. Hinsvegar mega einstaklingar breyta nafni sínu þegar þeir komast til vits og ára, svo þessi takmörk á að börn fái að heita Satan, Stalín eða Adolf Hitler eru ekki bindandi þótt þau geti vissulega haft alvarleg áhrif á þroska og andlegt heilbrigði barna á viðkvæmasta þroskaskeiði.

Nú geta einstaklingar ráðið því hvaða kynfornafni þeir flokkast af geðþótta þvert á lífræðina og síðast þegar ég taldi voru kynin orðin 37. Vel má vera að einhverjir geti ákveðið það hvort þeir eru hún, hann, það, honn eða einhver 33 önnur tilbrigði, en ég efast um að það sé í hendi eða samkvæmt vilja barna án hvolpavits. 

Jón Steinar Ragnarsson, 16.10.2019 kl. 20:25

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er vinsælt á hjá sumu geðbiluðu fólki að segjast vera Adólf Hitler; enfremur hafa Jesús og Napoleon verið fastagestir á vitfirringahælum. Mér finnst það mikið mannréttindamál fyrir Hitlerarna að fá að heita Adólf Hitler, rétt eins og karlmaður sem dúkkar allt í einu upp með að hann sé kona og fær að láta breyta sér í konu.

Jóhannes Ragnarsson, 16.10.2019 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband