Leita í fréttum mbl.is

Vel heppnað skemmtikvöld hinna miklu gleðimanna

kol18Þeir voru að skemmta sér í gærkvöldi, strákarnir. Fyrr um daginn hafði Indriði Handreður fyrir tilviljun slæðst inn á landfund Flokkseigendafélags VG og þar veittu þeir stríðsöl og Handreðurinn varð svo ofsakátur, að hann lét sér ekki muna um að fara dálítið á fjörurnar við kennpéninginn þar á fundinum, sem géðugur sem hann er, einnig varð hann uppvís af því að stinga löngutöng millum rassakinnana á völdum karlmönnum. Að lokum lenti hann í stympingum við nokkrar krumpað kérlingar, sem hringluðu skartgripum og sögðust vera fémínístar. Fór þá heldur að halla undan fæti fyrir okkar góða Indriða Handreði, og hann varð svo ruglaður af stríðsölinu og átökunum við krumpuðu VG kérlingarnar, að hann reif sig úr ollum fötunum og hljóp í hendingskasti út á flugvöll og hélt áfram að hlaupa þar uns Hálfdán Varðstjóri greip Handreðinn og teymdi hann á hreðjunum inn í lögreglubifreið hans hátignar ríxlögreglustjóra.

Þá varð Brynjar Vondalykt gripinn æði í gærkveldi og sparkaði upp hurð hjá hjónum sem hann taldi sig eiga vantalað við. En í þetta sinn stakk Vondalyktin heldur betur fingri í rangan þumal, því hjónin, sem hann átti vantalað við, höfðu selt íbúð sína fyrir skömmu og nýjir íbúar sestir þar að. Þegar Vondalyktin varð þess áskynja að brögð voru í tafli varð hann enn reiðari og reyndi að berja húsráðendur, sem tóku vasklega á móti og endirinn varð sá að Brynjar Vondalykt kom allt í einu svífandi eins og vígahnöttur út um útidyrnar, með buxur um um hnésbætur, og lét ekki staðar numið fyrr enn úti miðju stræti.

Hinsvegar ráfaði Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður undir miðnætti eins og fótbrotinn og halaklipptur hundur inn á heilbrigiðsstofnun í Reykjavík. Á heilbrigisstofnuninni kvaraði Kolbeinn hástöfum undan sárum verk í rassgatinu, eins og hann orðaði það, og heimtaði að fá að vera tekin fram fyrir aðra sjúklinga eins og höfðingja bæri. Læknisandskotinn var því miður ekki á sama máli og Kolbeinn og hafnaði kröfu hans. Að vonum var Kolbeini alvarlega misboðið að vera neitað um njóta forgangs og leitaði lags að reyna að hengja lækninn í hálsbindi sínu. Varð af þessu dálítill slagur, sem lauk með því að lækninirr fór að baða út höndunum, sem varð til þess að hann rak sprautuna, sem hann var með í annarri hendinni, hálsinn á bráðveiku kérlingarkjökri, sem brást ókvæða við um leið og hún sveif eins og engill inn í harðsnúna dóparavímu og fór að tala tungum. Svo komu sendisveinar Hálfdáns Varðstjóra og leiddu Kolbein á brott, eins og honum var nú íllt í rassborunni.


mbl.is Hljóp nakinn um Reykjavíkurflugvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband