Leita í fréttum mbl.is

Enn æsast leikar millum Þráins karlfausks og Bandaríkja-Sollu

kikkÞað er þriflegt, ef satt er, að Þráinn hafi hlandvalið eftirmann hr. Bessasonar til framboðs í Eflingu. Auðvitað væri huggulegra hjá þeim, einkum Bandaríkja-Sólveigu, að útskýra og leiða í ljós á haldbæran hátt hvað það er að ,,hlandvelja." Samkvæmt orðsins hljóðan, má ætla að þarna sé um sóðalega athöfn að ræða, þar sem einhver er valinn til einhvers með því að kasta af sér vatni á hann.

Svo bítast þau Þráinn og Bandaríkja-Sólveig um hvort þeirra sé nú meiri láglaunamanneskja og fórnarlamb og sér ekki enn fyrir endann á því fróðlega máli. En hitt er aftur ámælisvert ef Bandaríkja-Sólveig og Amríku-Viddi(eða Kana-Vibbi, eins og sumir kalla hann) hafa dregið hálaunamanninn Þráinn út úr húsi á eyrunum til þess eins að ráða upp undi hálfa tylft af hálaunamönnum til að vinna störfin sem Þráinn leysti af hendi, trúlega með miklum glæsibrag. Það kallast líklega hlandval á heimspekilegum nótum.

Jú, það mun rétt vera hjá hinum brottsparkaða hálaunamanni, að vælustefið hennar Sólveigar sé orðið útjaskað, því hún sé skohh alls ekki nein láglaunakona. Að minnsta kosti er emjandi hennar einlægt eins og fölsk nóta og lætur þar af leiðandi hálfilla í eyrum. Og auðvitað ýjar Bandaríkja-Sólveig að því að hinn afgamli kallgepill, Þráinn, láti stjórnast af kvennfyrirlitningu á háu stigi, enda sjórnist allir úrsérbræddir og ómóðins kallaskrattar af heinræktuðu hatri á konum, hvað þá þegar kvennfélag á boð við Elingu sé nú stjórnað af tveimur bláfátækum konum með siggrónar hönur af hroðalega illa borgaðri erfiðsvinnu. Líklega nær hið andstyggilega hvennhatur Þráins líka til Amríku-Vidda, sem er náttúrlega, eins og alþjóð veit, útþrælkaður öreigi, með þriggja séntímétra þykkt sigglag í lófunum. Það er aldeilis ljóti þrællinn þessi Þráinn, það er augljóst. En hvernig er það, hafa brottrekstrar Bandaríka-Sólveigar og Amríku-Vidda ekki aðallega bitnað á konum þarna á Eflingarkontórnum? Hvar var þá samhygðin með konum hjá fémístunum Sollu og Vidda þegar þau drógu eflingarkonurnar á skrifstofunni úr húsi á löppunum og hárinu, ásamt með viðeigandi orgum og sparki, og lögðu þær snyrtilega til í rennusteini strætisins utan við alþýðuhöllina?      


mbl.is „Sólveig er engin láglaunakona“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband