Leita í fréttum mbl.is

Skussarnir arðrændir og dólgar sem stunda gripdeildir í fjárhirslum ríkisins

flokkseigendur_786424Það er ekki á þá logið, nefapana, sem eiga og reka einkahlutafélagið VG, þ.e. ,,Vinstri"hreyfinguna ,,grænt" framboð. Ekki er nóg með að þessi grey, sem eiga að heita alþingismenn fyrir þennan kostulega flokk, séu höfð að fíflum dags daglega af eigendum sínum, heldur láta eigendurnir sér ekki muna um að arðræna veslingana með því að láta þá borga í ,,flokkssjóðinn." Að sjálfsögðu lætur Stengrímur ríkissjóð borga framlagið fyrir sig undir liðnum ,,dreifbýlisstyrkur", en það er allt í lagi hjá manni með aðra eins ofboðslega þingreynslu eins og Stengrímur, fyrir utan að hann er einn af æðstu hluthöfunum í Flokkseigendafélagi VG.

Af hverju Proppi er ekki látinn borga, er illskiljanlegt, því þótt hann sé vegna ótrúlegra hæfileika sinna í náðinni hjá æðsta ráðinu, þá verður hann að borga fyrir að fá að vera þingmaður Stengríms, Álfheiðar og Swobbófjölskyldunnar. Svo má vera að drengkjökrið sé gjaldþrota, fallítt, og bara hreinlega á hreppnum. Okkur er nú fjandans sama um það allt. En það er vel til fundið af Flokkseigendafélaginu að arðræna dekurdýrin sín af undarennuættum.

RæningiSvo er sjálfsagt viðeigandi, þótt að gani nákvæmlega ekki neitt, að nefna þennan óstjórnlega fjáraustur úr ríkissjóði í stjórnmálaflokkana, ekki síst vegna þess að þessháttar framferði gerir ekkert annað en að ýta undir spillingu og varmennsku hinna siðlausu alþingismanna. Það fyrir utan geðjast mér alls ekki að því að dólgar á borð við Bjarnaben og Stengrím séu að moka til sín peningum, sem ég meðal annarra hefi greitt í ríkissjóð. Þessháttar glæpamennsku mótmæli ég af heilum hug og inna að innstu hjartarótum. Það á sem sé ekki að líða þjófnað sem þennan af almannafé. Ef þingmenn geta ekki látið af því að draga háar fjárupphæðir draga sér fé inn í stjórnmálafyrirtæki sín, sem sum eru skipulagðar glæpasvínastíur, þá er ekki um annað að ræða en að almenningur geri aðför að þinghúsinu og dragi ruslaralýðinn og gripdeildarseggina, sem þar búverka, út á skottum sínum og kasti þeim öllum sem einum út í Reykjavíkurtjörn og láti þá svamla þar, börnum og hröfnum til skemmtunar.


mbl.is Þingmenn VG styrktu flokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband