Leita í fréttum mbl.is

Stjórnarskrárjarmurinn úr söngbók krataeðlisins

kamar.jpgOg stjórnarskrárjarmurinn heldur áfram og nú í formi áttavilltrar samkomu á Austurvelli. Yfirskyn samkomunnar var háttarlag Samherjanna í víðum skilningi, en fyrst og fremst kom fólk þarna saman til að hylla steinbarn ný-stjórnarskrárjarmaranna, sem sennilega eiga afmæli um þessar mundir. Eflaust hefir eitthvað vafist fyrir sumum þarna á Austurvelli í dag hverju væri verið að mótamæla í raun og veru, því út úr andlitum mótmælanda mátti lesa spurnarsvip og ráðaleysi.

Að vísu vóru innvígðir furðufuglar af kaffihúsum og knæpum í hundrað og einn, Reykjavík, dregnir á svið og látnir kumra gamalkunn stef úr söngbók krataeðlisins; einhver frakkaklæddur mólúkki las upp einhverja steypu, væntanlega eftir sjálfan sig, og átti í mesta brasi með að finna út hvernig hann ætti að ljúka munnræpu sinni; þarna var líka otað fram á svið Bandaríkja-Sólveigu, sem sagði ,,aaammm" og klifaði síðan enn einusinni upp þennan eina lestur sem hún kann. Bandaríkja-Sólveigu til hróss, þá tókst henni í öllum vaðlinum um óréttlæti heimsins, að skauta framhjá fálkalegum afrekum sjálfrar sín, Amríku-Vidda og Gunnars Smára á skrifstofu Eflingar. En sem kunnugt er hefir nefnt tríó leikið það, síðan þau lögðu Eflingu undir sig, að draga roskið starfsfólk á skrifstofu Eflingar úr húsi á löppunum, eða á skottinu eftir atvikum, og reka það með skít og skömm af harðla óljósum ástæðum; einna helst virðist Bandaríkja-Sólveigu og þeim hafa þókt hið brottrekna fólk of gamalt fyrir sinn smekk, en of hár aldur fólks fer víst óttalega í taugarnar á ný-sosialistunum í Eflingu og ,,sosialistaflokki" Gunnsa Smára. Þess utan geðjast hinum amrískmenntuðu ný-sosialistum illa að fólki, sem er betur að sér um rekstur stéttarfélaga en það sjálft.

Stjórnarskrárjarmurinn á Austurvelli í dag verður ugglaust fyrsta og eina mótmælasamkoma knæpu- og kaffahúsaspekúlantanna í 101 Reykjavík í tilefni hrakfara Samherjanna á Íslandi í Namibíu og nágrenni. Ef halda á fleiri fundi á Austurvelli til að mótmæla spillingu, skipulagðri glæpastarfsemi og kapítalisma verður að fá annað fólk - fólk með fætur á jörðinni og vit í kollinum - til að annast slíkt. En liðinu, sem stóð fyrir jarminum í dag, á auðvitað að koma til náms í leikskóla, helst hjá Möggu Pálu í Hjallinum, því hún kann lagið á svona óbermum.  


mbl.is „Ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband