Leita í fréttum mbl.is

Þegar Hálfdán Varðstjóri handtók fémínístafélagið, hræmulega litlaust og do

femma5.jpgPromm skromm romm Tomm. Svo frú Soley Tomm heldur að undanrennugutlið í VG hafi upplitast eða misst lit eftir að hún hætti að vera númer þar. Þess utan skiptir aungvu máli hvað Soley Tromm heldur, hvort hún heldur þetta eða hitt eða alls ekki neitt. Þegar Soley og það fólk yfirtók VG með Flokkseigendafélaginu var VG í raun og veru búið að vera. Fémínístaflokkar lifa skjaldan, eða aldrei, lengi, þeir drepast úti á víðavangi og fáir sakna þeirra. Það varð nokkuð fljótlega ljóst eftir stofnun VG, að þeim fokki var ekki ætlað að vera vinstriflokkur, þrátt fyrir nafnið, allrasíst vinstrisósíalískur flokkur, um það sáu loddararnir Stenngrímur Johoð og Swabbó Gests og fengu til liðs við sig borgarlegt cocopupuffshyski af háskólalóðinni, undanrennusálir og dekurdýr, öllu þessu tilheyrir frú Soleu Tomm fílí-romm-bomm-bomm.

Önnur frú, frú Ingveldur, hefir lengi haft lúmskt gaman að systur sinni Soley og spaugað með framgöngu hennar á hinu poletiska hlandsvelli. Eitt sinn, þá frú Ingveldur var nýbúin að skíta, lagði hún lykkju á leið sína og heimsókti höfuðstöðvar fémínístanna og hellti títurnar sem þar vóru fyrir blindfullar og beitti þeim sían eins og kvíaám á Austurvöllinn. Já, vinir mínir, það einmitt þegar allmargar konur vóru handteknar fyrir að rífa í sig blómstrin á Austurvelli eins og hungraðar rollur. Það var Hálfdán Varðstjóri sem sá um handtökuna og yfirheyrslurnar í þessu sóðalega máli.

hálf2Ekki er vitað fyrir víst hvort frú Tromm var í meðal þeirra sem Hálfdán Varðstjóri lokaði inni fangaklefunum þennan dag, en hitt er víst að Varðstjórinn var allur rifinn og tættur eftir fémínístana, sem voru illvígir og dónalegir og langt í frá samvinnuþýðir við lögregluna. Og fémínístarnir vóru líka rifnir og tættir eftir átökin og bölvuðu mikið þegar Hálfdán sagði þeim til syndanna og hélt mikla nærbuxnaræðu yfir þeim, því þetta vóru nærbuxnafémínístar, trylltir af ofstæki, en báru þó í brjósti leynda ást til Hálfdáns Varðstjóra, sem hann kunni, þrátt fyrir allt, vel að meta. Úr þessu varð hin megnasta hneisa, bæði fyrir lögregluembættið sem og fémínístafélagið, en þó tókst samt út yfir allan þjófabálk þegar í ljós kom, að meðal fémínístakérlínganna leyndist sá æruverðugi skallamunkur, hann Stenngrímur okkar, og var hann með bleyju, þá að var gáð, að blautbarnasið.


mbl.is Sóley: VG sífellt litlausari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband