Leita í fréttum mbl.is

Nú verđur ,,Bróđurhöndin" ađ hafa upp á glćpamönnunum og leiđa ţá inn á réttar brautir

séraSér er nú hvur ,,Bróđurhöndin" atarna sem lćtur stela frá sér flugeldum fyrir milljon, hér um bil um hábjartan dag. Og ćtli fari ekki eins og venjulega hjá lögreglunni ţegar hún fer ađ rýna í öryggismyndavélarnar: ekkert ađ sjá, vélin óvirk. Á međan valsa bófarnir um eins og Sjálfstćđismenn međ fullt fangiđ af sprengiefni, ţess albúnir ađ sprengja allt og alla í loft upp.

Hérna einhvurju sinni í gamla daga stálu Kolbeinn Kolbeinsson, síđar skrifstofustjóri og Framsóknarmađur, og Brynjar Vondalykt ókjörum af dýnamíti og fóru međ ţađ upp í sveit á gamlárskveld. Í sveitinni komu ţeir sprengiefninu fyrir í fjóshaug og sprengdu. Um ţetta leyti hafđi veriđ heljar frost í sveitinni og tveggja tommu ţykk frostskán yfir öllum haugnum, sem gerđi ađ verkum ađ sprengingin varđ enn stórfenglegri en ef fjóshaugurinn veriđ ófređinn. En sprenging ţessi gjörđi heldur meira ađ verkum en ađ fćra nokkur tonn af kúaskít úr stađ. Fjósveggurinn féll inn og slasađi tvćr kýr og gaddfrosinn tađköggull fór í tígulegum boga inn um eldhúsgluggann á bćnum og gjörđi nćstum útaf viđ fjölskylduna, sem sat ađ mat sínum viđ eldhúsborđiđ; ţau hjónin fóru bćđi á géđveikrahćli á eftir og börnum komiđ fyrir hjá vandalausum fyrir milligöngu barnaverndarnefndar.

Síđar gjörđu Kolbeinn og Vondalyktin yfirbót, fóru á knén frammi fyrir síra Baldvini sem skenkti ţeim náđarmeđölin. Á eftir gjörđist Kolbeinn handgenginn gömlu ófrýnilegu Framsóknarmaddömunni en Vondalyktin gekk fagnandi í Sjálfstćđisflokkinn. Ţannig var gert gott úr hinu fljótfćrnislega framtaki ţeirra kompána og ţeim gefiđ tćkifćri til ađ verđa menn međ mönnum. Ţeir hafa líka ávaxtađ sitt pund, eru mjök valdamiklir og helgarsamkvćmin hjá Kolbeini og eiginkonu hans eru rómuđ út fyrir landsteinana. Nú er ţađ sem sé í verkahring ,,Bróđurhandarinnar" ađ hafa uppi á götustrákunum sem stálu öllu sprengiefninu frá henni. Viđ trúum ađ ,,Bróđurhöndin" muni haldleika ţrjótana af ást og nćrgćtni og gefi ţeim fćri á ađ víkja af villu síns vegar. Og síra Baldvin er bođinn og búinn ađ veita ţeim uppreist ćru og leiđa ţá í heilögum anda inn í Framsóknarflokkinn og Sjálfstćđisflokkinn, ţví ţađ eru einu flokkarnir sem kunna ađ fara međ hetjur.

  


mbl.is Lögregla skođar öryggismyndavélar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband