Leita í fréttum mbl.is

Kuggur og Lóði, vertshús þeirra og stelpuskjáturnar

drunk4Við sem komin erum til ára okkar munum flest eftir vertunum Kuggi og Lóða, sem ráku skemmtilega staði eins og til dæmis Aðmírálinn og Sjóhestinn. Einnig komu þeir að rekstri hins alþekkta staðar Ferðamannsins, en þar voru haldin skröll á kveldin með kvenfólki. Það var ágætur staður. Á Aðmírálnum tíðkuðust viðburðir á borð við ,,live sjów" og annað í þeim dúr og kvennaþjónustan frábær, þar til einn daginn að viðskiptavinirnir vóru allir komnir með blússandi fransós. Á Sjóhestinum var starfrækt vinnuherbérgi fyrir öfugugga bakatil, en þar fyrir framan var bara venjuleg knæpa með spilakassa og soleiðis.

Kuggur og Lóði bættu hvorn annan upp. Kuggur var stór og sterkur og gefinn fyrir áflog, en ansans ári vitgrannur. Lóði var hugsuðurinn og brellumeistarinn og þegar komst upp um hann kom Kuggur óðara á vettvang og barði þá sem töldu að Lóði hefði svindlað á þeim. Við, sem þá vórum ungir sjódrengir, heimsóktum staði þeirra kompána reglulega. Einkum var þægilegt að koma á Ferðamanninn eftir viku eða hálfsmánaðar sjóvolk því þar var ágæt tómlist, sem leikin var á dragspil, harmóníum og gígjur, og spilamennirnir allaf útúrfullir og gerðu ekkert annað en að fara út af laginu og byrja aftur og aftur á sama stefinu þar til dansgestum leiddist þófið og fleygði þeim út; í staðinn var leikið af plötum og allir hoppuðu og skoppuðu eins og sprellifífl. Á Ferðamanninn lögðu leið sína kátar stelpuskjátur sem vóru til í allt fyrir eina til tvær ölflöskur, annaðhvort Grön eða Hof, og vóru á allan annan máta ódýrar í rekstri og sváfu um borð í boði skipverja.

Já. Um þessar mundir er hart nær hálf öld síðan þessir dýrðardagar hurfu í aldanna skaut, eins og segir einhvers staðar í kvæði. Nú er mér sagt að Kuggur vert sé dauður, hafi fundist myrtur í einhverju ekkisins ruslatunnuporti ekki langt frá Sjóhestinum, Lóði situr í fangelsi fyrir ægilega glæpi og á ekki afturkvæmt úr fangaklefanum fyrr en farið verður með hann milli fjögurra fjala út í garð, það er ef þeir veita legstað í vígðri mold. Í húsinu, hvar fyrrum hýsti Ferðamanninn, er nú trésmíðaverkstæði og Sjóhesturinn var rifinn um leið og Kuggur var dauður og Lóði kominn í steininn. Aðmírállinn hafði áður brunnið til ösku og Lóði var kominn með gríðarlega vátryggingarupphæð í péníngum í sína vörslu; svo komst upp að Lóði hafði sjálfur brennt Aðmírálinn upp til agna, til að losa um eignir og komast yfir bílfarm af reiðufé. Af stelpuskjátunum hafa aftur á móti litlar fréttir borist, utan hvað þær ku allar dauðar fyrir margt löngu og sögðu viðkomandi bæjaryfirvöld að fráfall þeirra hefði ekki markað nokkurn einasta héraðsbrest, þvert á móti hefði dauði þeirra undantekningarlaust talist ágætur búhnykkur fyrir samfélagið.      


mbl.is Reksturinn auðveldari en á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband