Leita í fréttum mbl.is

Er daman ekki bara að skrökva öllu þessu dodo upp á sig?

ing35_1242280.jpgSona djöfulskap viðurkennir aunginn upp á sig fyrir framan alþjóð og alheim nema ef til vill stóðkvendi eins og frú Ingveldur og Máría Borgargagn. Hvernig þessari skrukku getur dottið í huga að ljúga þvílíkum firnum upp á sig er óskiljanlegt; það þarf ekki annað en horfa á myndina af henni til að sjá að hún væri fyrir löngu dauð úr hjartaslagi ef eitthvað væri til í þessu hjá aumingja konunni. Frú Ingveldur, aftur á móti, er þannig að Guði gjörr að geta gert þetta sem saungperlan Kéllý segist gjöra á hvurju kveldi. Og frú Ingveldur fer létt með að gera sona dodo oft á dag árið út í gegn og meira til; og ekki er Máría Borgargagn síðri lostabikkjan sem hún er.

Þá er heldur ótrúlegt að eiginmenni Kéllýar hafi úthald til að gera þetta nema eins og tvö kveld í röð og þá endrum og sinnum, nema hann sé eitthvað kynóður, sem er slæmur löstur á einum manni. Við vonum auðvitað öll til Guðs, að Kéllý hafi ekki með fleiri karlgöltum en sínum ektakærasta; en það er grunsamlegt, og í alla staði ómögulegt, að koma heim og saman öllu þessu ógnarkynferðislífi hjá konunni á hvurja kveldi.

Ódámurinn Kolbeinn Kolbeinsson var einhverju sinni að gorta sig við hóp af strákaskröttum af því hvað hann væri úthaldsgóður og úrræðagóður á kynferðissviðinu og sagði því til staðfestingar að frú Ingveldur væri oft lömuðuð á eftir frá miðjum rassakinnum og niðrúr þegar honum tækist hvað best upp. Einhvern veginn frétti frú Ingveldur af þessu þvæli og karlsins og veitti honum fyrir bragðið þessháttar ráðningu, að síðan hefir hann ekki viljað heyra á kynlífsafrek minnst.


mbl.is Segist stunda kynlíf á hverju kvöldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Ef satt reynast dodo sögur fraukunnar, þykir tuðaranum tveir krakkagríslingar rýr eftirtekja. Hræddur um að stór hluti dodosins hljóti að vera með ´´manual´´ eða jafnvel ´´armstrong´´ og ´´all alone´´ aðferðinni. Undarlegur andskoti annars að þurfa endilega að tjá sig um þetta í fjölmiðlum. Enn undarlegra að hérlendir fjölmiðlar skuli vera komnir neðar  en einmana kerling í sjálfsfróunargír, sem getur ekki beðið eftir að segja öllum frá.

 Hræddur um að frú Ingveldur gefi svona kerlingarsnift ekki háa einkunn, hvað þa smartfíflinu sem kemur svona endemis andskotans dellu fyrir sjónir almennings og það í mbl.is ásamt öðru einskisverðu andskotans rugli um allt og ekkert.

 Góðar stundir og gleðilegt ár, með kærri kveðju að sunnan. 

 ´´ The show must go on´´!

Halldór Egill Guðnason, 1.1.2020 kl. 02:19

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég held ég sé bara nokkurn veginn alveg sammála þér hvað þetta varðar.

Gleðilegt ár.

Jóhannes Ragnarsson, 1.1.2020 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband