Leita í fréttum mbl.is

Árátta í að birta langar runur af fólki með áfengiseitrun

ingAldrei fæ ég nokkurn botn í áráttu netmiðlanna að birta langar runur af fylliríismyndum af vínhneygðu ólánsfólki. Ætli þetta eigi að vera tilbrigði við hina glæstu hugmynd Jónasar frá Hriflu, sem var bæði í senn faðir og móðir gömlu Framsóknarmaddömunnar, þess efnis að bráðnauðsynlegt væri að taka umsvif drykkjurútanna upp á kvikmyndavél og skikka þá síðan til að horfa á sjálfa sig á hvíta tjaldinu í kvikmyndahúsi. Svipaðri hugmynd skaut upp í kollinn á Sigmundi Davíð, en hann lagði hana síðan alfarið á hilluna eftir drykkjulætin á Klaustri, sem hún Bára tók upp og sýndi allri þjóðinni.

En fylliríismyndatökumenn fjölmiðlanna hafa sérstaka aðferð við að festa hina ölvuðu á filmu. Þeir stilla þeim upp, tveimur til fjórum í einu, og smella af; þetta er mjög líkt því þegar ófremdardólgar eru leiddir fyrir aftökusveit og skotnir eins og hundar. Svo eru nöfn raftanna tíunduð fyrir neðan myndirnar, þeim til háborinnar skammar og háðungar.

Þegar Félag kvenna í atvinnulífinu hélt tryllta brennivínsveislu á dögunum var myndasmiður viðstaddur og tók myndir. Á sumum myndanna eru vesælar konur, kófdrukknar og haldnar greinilegri áfengiseitrun, með eitthvað í glösum sem er á litinn eins og þvag. Það leiðir hugann að því hvort verið geti að fólk sé látið drekka hland í sona veislum þegar það er orðið of ölvað að mati áfengisveitandans; eða er það máski partur af skemmtaninni að plata hálfrænulaust fólk til að staupa sig á migu? En sem betur fer vóru allir myndasmiðir á bak og burt þegar sló í alvarlega brýnu milli kvenna í svallveislu Félags kvenna í atvinnulífinu, en þar slóst frú Ingveldur berhent við sex framsóknarkerlur, allar blindfullur, og hafði betur; daginn eftir sendi frú Ingveldur kerlunum sex skilaboð upp á sjúkrahúsið þar sem þær lágu og spurði hvort þær vildu fleiri högg á andskotans trýnin, eins og hún orðaði erindi sitt. 


mbl.is Kvenskörungar skemmtu sér á FKA-hátíðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband