Leita í fréttum mbl.is

Nákvæm lýsing á afkvæmum Sjálfstæðisflokksins

kol19Sjónvarpsþátturinn ,,Útrás" er nákvæm lýsing á afkvæmum Sjálfstæðisflokksins og öllum þeim ósköpum sem þau hafa látið af þér leiða frá því á tíunda áratug síðustu aldar og til dagsins í dag. Þó að þátturinn sé norskur, þá eru höfundar hans mjög vel kunnugir íslenskum útrásarvíkingum, kvótagreifum og öðrum mikilsmetnum Sjálfstæðismönnum á Íslandi, enda er þáttasyrpan beinlínis ljósrit af þeim skörfum. Reyndar ættu þættir þessir að heita: Allt sem þú villt vita um íslenska útrásarvíkinga og Sjálfstæðisflokkinn.

tvazivj.pngÞau sátu bergnumin yfir þessu sjónvarpsefni þau frú Ingveldur og Kolbeinn og þeirra vinir. Og það mátt heyra þau tuldra af og til: Hvernig á andskotanum komust þeir að þessu? Það átti ekki nokkur maður að vita þetta. Það hefir eitthvert helvítið kjaftað frá. Sá skal nú fá að finna fyrir því; hann verður hogginn eins og hænsni og látinn hlaupa hauslaus út um víðan völl. Brynjari Vondulykt leið afar illa á meðan hann meðtók þetta ófétislega sjónvarpsefni; nokkrum sinnum leið hann út af náfölur og féll í ómeginn og náði sér ekki á strik aftur fyrr en eftir rúmlega hálfa flösku brennivíns og slurk af kókaíni. Og Indriði Handreður skeit hreinlega í buxurnar undir einu atriðinu, hann kannaðist persónulega ofur vel við; þá barði frú Ingveldur hann og kastaði honum út og hljóp síðan um allt hús og úðaði híbýlailmi út spreybrúsum til að yfirgnæfa pestina af Handreðnum.

Og víst er um það, að bæði Bjarniben og Katrín Stenngrimmsdóttir lögðust í rúmið í viku eftir að hafa horft á Útrásarþættina norsku um íslensku útrásarsjálfstæðismennina. Af hverju þau lögðust er mönnum hulið því bæði eru þekkt fyrir að fá aldrei móral út af nokkrum sköpuðum hlut. Einhver mjög háfleygur og menntaður náungi lagði fram þá kenningu, að þau hefðu lagst í bælið af því þau væru ekki með öllu siðblind, en fólk hló bara að þeirri tilgátu og sópuðu henni óðar út af borðinu og eins og hvurri annarri fásinnu og rugli. Nú stendur til af hálfu ríkisstjórnarinnar að banna með lögum óþverraþættina um útrásarsjálfstæðismennina og ennfremur allt annað efni á sömu nótum.  


mbl.is Nýtt siðblinduviðmið í sjónvarpi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband