Leita í fréttum mbl.is

Hvurjir eru það sem eru að spila með stelpukvikindið?

x26Djöfull var að sjá til eignarinnar í sjónvarpinu í kvöld. Nú eru þeir hættir að reyna að fela spottana, sem þeir stjórna henni með, og röddin, drotinn minn góður Guð, hún var alveg eins kumrið í frú Andersen. Hvað á að þýða að draga þennan volaða einfeldning fram í fjölmiðla til kvaka þar eins og mýrisnípa, sem tekin var upp á stálþráð skömmu eftir seinna stríð? Geta þeir ekki fundið eitthvurt minna meiðandi skemmtiefni en þennan páfagaukavaðal? Meira að segja Framsóknarmenn eru farnir að hlægja opinberlega að stelpukvikindinu og eru þeir þó ekki glaðværir og spaugsamir að upplagi.

En fyrst minnst hefir verið á hinn misheppnaða og ósmekklega skemmtiþátt sjónvarpsins, þá búa þeir hjá VG svo vel að eiga lukkuriddara, undanrennustagkálfa og uppskafninga í löngum bunum. Það væri til dæmis nokkuð gefandi fyrir að sjá undanrennugöndulinn K. Ó. Proppí á skjánum, rígsperrtan, hallandi undir flatt og glápandi eins og sauðnaut til himins, rétt eins og hann eigi von á digrum happdrættisvinningi úr þeirri átt. Þessi drengur er heimsmeistari í bulli og hreint alveg met í mótsagnadrifinni reginþvælu, sem er svo vitlaus að meira að segja ómálga börn trúa henni ekki. Og þá er jólatréð að norðan, sem Stenngrimmur hafði með sér til þings ekki síðra Proppinu hvað absúrdisma varðar. Kóróna meistaraverks Stenngríms eru svo hin stórhlægilegu finngálkn, annað úr norðvestrinu og annað úr Kraganum, svo undarlega spólvitlaus í málflutningi, að það tekur meðalmann upp undir hálfan mánuð að jafna sig á að hlusta á önnur eins ósköp og þessi snilldarmenni og þingskörungar láta út úr sér. Eftir situr svo hin áleitna spurning til hvurs og fyrir hvurja þessi VG skítaklessa er í raun og veru.

En aftur að eigninni og kórónuvírusinu í sjónvarpinu í kvöld. Það er samdóma álit, til þess bærra manna, að ,,ávarp" greysins hafi verið á pari við kostulegustu tækifærisræður Dónalds Trumps. Þar hafa ægt saman fádæma innihaldsleysi, meiningarleysi og ropi. Það væri gaman að fá að vita hvaða helvískir dárar það eru sem espað hafa þessa lánlausa kvenpersónu til að fara fram í sjónvarp með slíka margtuggna helgislepju úr gölnustu paurum braskarastéttarinnar. Fólk á náttúrlega skýlausan rétt á að fá að vita hverjir það eru, sem í heimskulegum stráksskap sínum, láta sig hafa að spila með mannéskju eins og hvurn annan slípirokk og láta hana slettast til á sjónvarpsskjá ríkisins og ropa þar eins og trúð, sem étið hefir offylli sína af möl og sandi. Það verður að stugga við þessum peyjum og láta þeim skiljast, að ef þeir hætti ekki að atast með stelpuna verði þeir lokaðir inni á vitfirringahælinu.    


mbl.is „Við þurfum að fara hægt í sakirnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband