Leita í fréttum mbl.is

Nú ríður á að stjórnvöld hafi hraðar höndur og setji upp pípuhattana

cap2Nú ætti ríkisstjórnin bregðast skjótt við og senda nefnd manna með pípuhatta til Kaupmannahafnar og freista þess að fá eitthvað af þessum beinum, sem fundust við uppgröft við hlið grasagarðs borgarinnar. Það má nefnilega vel vera, að þarna séu bein Jónasar heitins loks komin í leitirnar. Síðan mundu pípuhattamenn ríkisstjórnarinnar koma heim með beinin í gullkistu og að því loknu mundi Jónas verða haldin önnur pípuhattajarðarför á Þingvöllum.

Á sínum tíma komst upp sá leiðindaorðrómur, að fyrri útför Jónasar hefði verið ómark, þar eð beinin, sem þá voru embættuð, hefðu verið af dönskum slátrara, sem fórst í götuslagsmálum úti á Ámakri. Jafnvel heyrðist, að í kistunni, sem fyrirmenni þess tíma báru til grafar, hefðu ekki verið nein bein, utan eitt rifbein úr folaldi , en þeim mun meira af ryðguðum niðursuðudósum, hálffullum af dönskum leir. Alla tíð síðan hefir efinn um innihald kistunnar hvílt þungt á íslenskum stjórnvöldum, einkum Sjástæðisflokksmönnum og Framsóknarmönnum. En það þókti samt stórfengleg sjón, þegar stórmenni Íslands, allir með pípuhatta, líka sá blýgrái, strunsuðu með niðursuðudósirnar og danska leirinn úr Þingvallakirkju og út í stórmennagrafreitinn fræga.

Hitt er svo æði sérstakt, að helstu fyrirmenni íslensku broddborgarastéttarinnar á Íslandi, skuli hafa haft slíka áráttu fyrir að endurjarðsetja líkamsleifar byltingarsinnans og sósíalistans Jónasar Hallgrímssonar náttúrufræðings og skálds. Ekki síst er þessi kynlega árátta stórundarleg, ef tekið er tillit til þess, að ,,betri borgurum" í Reykjavík þókti ófínt að láta sjá sig með honum á götu. En sextíu árum síðar ruku íhaldsskepur Íslands til og hreyktu upp líkneski af þessum fyrirlitna bolsévika í sjálfum miðbænum, alþjóð til andlegrar fyrirmyndar. (1)

(1) Heimildir: meðal annars ,,Eldvígslan" eftir Þórberg Þórðarson.

 


mbl.is Mannabein á dönsku byggingarsvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband