Leita í fréttum mbl.is

Hann greiddi Swandeesý og hennar slekti snjallan löðrung beint á trýnið

kick1.jpgÍ flokkseigendafélagi VG er áratugahefð fyrir snobbi og háborgaralegri sýndarmennsku. Í þeim efnum hefir Swabbófamelíjan staðið fremst meðal jafningja, öll með pípuhatta og sum með parruk. Svo gerist það í Kastljósi kvöldsins, sem er að öllu jöfnu leiðinlegur og lélegur hengilmænuþáttur, að Kári nokkur Stefánsson gerði sér lítið fyrir og rak Swandeesý Sendiherrans þennan líka roknalöðrung, beint á trýnið, svo ekki aðeins vissu iljar hennar einnar upp, heldur og líka iljar gamla Swabbó, Steingríms Johoð og Álfheiðar Ingadóttur.

Nú hagar því þannig til, að nefndur Kári er hámenntaður læknir og doktor og forstjóri og Guð veit hvað, og kinnhestur frá slíkum garpi er margfalt, margfalt, sárari fyrir VG-fjölskylduna en þókt hún hefði fengið á bévaðan lúðurinn með múrbrjót. Og ekki bætir úr skák, að karlinn Kári er sonur Stefáns heitins Jónssonar alþingismanns, sem var að mörgu leyti merkilegasti þingmaður Alþýðubandalagsins í sögu þess flokks. En nú liggur sem sé öll flokkseigendahjörð VG í gólfinu, steinrotuð, og allsendis óvíst hvort hún muni komast á lappirnar aftur, en það gerir ekkert til.

Það liggur einnig fyrir, að Swandeesý Sendiherrans er búin að vera sem ráðherra og stjórnmálamaður yfirleitt. Meira að segja Katrín litla, sem talar alltaf eins og hún hafi aungva skoðun, og ef hún hefir skoðun á einhverju þá hefir hún minnst tvær eða þrjár skoðanir á málínu, mun ekki með nokkru móti hafa hæfileika og enn síður getu til að forsvara Swandeesý fyrir þjóðinni eftir þetta líka skelfilega kjafthögg Kára. Það má vel vera að Steingrími Johoð detti í hug að fara með undanrennubörnin í VG í rústabjörgun, hann er frægur, heimsfrægur, að eigin mati, fyrir þessháttar störf. En það gæti verið þyngri þrautin fyrir hinn mergjaða Samhefja að blása lífi í nasir Flokkseigendafélagsins og þá einkum í Swandeesý sjálfa, gamla Swabbó og frú Álfheiði, sem orðin er svo lík gömlu óhrjálegu Framsóknarmaddömunni að þær þekkjast ekki lengur hvur frá annarra í fjósflórnum. 


mbl.is Kári sagði Svandísi hrokafulla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Sjaldan hefur annað eins kjaftshögg verið veitt sjálfumglöðum ráðherra og í gærkveldi. Spurning hvorum megin garðs Swandees lendir. 

 Djöfull var annars karlinn Kári flottur í Kastljósinu. Andskotinn bara, ef ekki eitt besta Kastljós ever! Borgargagnið hlýtur að hafa vökvast sem aldrei fyrr og Kolbeinn þungt hugsi úti í horni með Handreðinn áfengisdauðan sér við hlið. What a show!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 28.5.2020 kl. 01:45

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég þykist nokkuð viss um, að Svandís, auminginn, hefur ekki enn áttað sig á hvar hún er lent.

Jóhannes Ragnarsson, 28.5.2020 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband