Leita í fréttum mbl.is

Er verktakinn máske góðgjörðamaður Framsóknarflokksins?

tvAuðvitað verður sami verktaki og lagði dauðagildru-yfirlögnina kallaður til og látinn leggja gildruna að nýju, nema hvað? Það mætti vel halda að verktakinn sá, sé góðgjörðamaður Framsóknarflokksins, yfirhúskarlsins þar á bæ og gömlu geggjuðu Framsóknarmaddömunnar, sem hefir marga spillingarfjöruna sopið.

Forstjóri Vegagerðarinnar er líka inngróinn framsóknarfjósinu og ráðin samkvæmt ýtrustu spillingarkröfum hins óarga flokks, Framsóknarflokksins. Allt er þetta subbulegra en orð fá lýst. Fáir bera blak að þessum óþverra, nema auðvitað Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, en hann finnur ævinlega rétta framsóknarbesefann í hinum dásamlegu hrossakaupum stjórnmálafíflanna um stjórastöður vítt og breitt um kerfið. Var ekki verið að leiða eitt framsóknarhrossið til ráðuneytisnafnbótar um daginn?

Ætli þetta fari ekki bara að verða gott hjá Framsóknarflokknum? Er ekki réttast að slá þetta flokksviðrini af eins og hvurt annað aflóga hænsn, sem fyrir löngu er hætt að verpa og stundar það eitt að aféta hinar púturnar? Í mínu ungdæmi var slíkum hænsnfuglum kastað í fjóshauginn eftir að búið var að embætta þá með öxinni.


mbl.is Sami verktaki leggur nýja yfirlögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband