Leita í fréttum mbl.is

Þjóðlegir sjúkdómar sem gleðja alla sanna þjóðhyggjumenn

kol30_1225089.jpgÞetta er afskaplega þjóðleg frétt sem við vitum að gleður alla sanna þjóðhyggjumenn lífs og liðna. Hjarðsveinasjúkdómur er hreint og klárt menningarfyrirbrigði og þá ekki síður blessaður lekandinn, eða hver man ekki eftirfarandi vísubrot úr lengra ljóði: ,,Flatlús og lekandi hvíldu í ró?" Jú, það muna allir eftir því sem á annað borð hafa minni. Og nú skríða hjarðsveinasjúkdómurinn og lekandinn upp vinsældalistann á Íslandi á kostnað fjandans kóvíðsins nítjánda, sem er ekki veiki fyrir fimmaura við hliðina á hjarðsveinasjúkdómi og góðum lekanda. Og so ku flatrarinn standa fyrir sínu þessa dagana og er sagður færast í aukana dag frá degi.

Þegar frú Ingveldur komst næst því að taka Kolbein eiginmann sinn af lífi var þegar hann kom heim með bæði flatrara og lekanda í farteskinu. Í það sinn hafði Kolbeinn verið að svalla í undirheimunum, óvart að sjálfsögðu, og kynntist þar náið vafasömu fólki. Það var víst sjón að sjá þegar Kolbeinn kom heim til sín eftir veru sína í undirheimunum; kall helvítis dólgurinn kom slagandi heim um hábjartan dag í hvítri skyrtu, sem hann átti þó ekki, einni fata en frú Ingveldur tók við honum og sló hann strax í rot í anddyrinu.

Og af því nú frú Ingveldur er vitur kona, ,,snotur" hefði verið sagt um hana í Hávamálum og öðrum gullaldarkveðskap, þá hafði hún strax samband við sóttvörn þegar henni varð ljóst að eiginmaður hennar var sjúkur eftir undirheimasnattið og hún orðin smituð af óþokkanum. Einnig skipaði hún sóttvarnarlæknunum að hafa upp á þeirri andstyggilegu flagmeri og lostadækju Máríu Borgargagni og aflúsa hana einusinni alminnilega og sprauta hana so fulla af pensélíni að hún stæði gapandi á þambi á eftir. Þannig tókst frú Ingveldi í það skipti að bægja hættulegum vágestum frá heimili sínu. So frétti hún til þess að tveir virtir bánkastjórar hefðu á sama tíma tekið sömu sóttir og Kolbeinn og hefði flatrarinn gengið sérlega nærri miðvígstöðvum annars þeirra, en ekki verður farið nánar út í þann sálm að sinni. En þetta með bankastjórana gaf frú Ingveldi tilefni til íhugunar og sjálfstæðra rannsókna.


mbl.is 43 greindir með sárasótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband