Leita í fréttum mbl.is

Norðmenn gjöra aðför að frjálsu framtaki og nýfrjálshyggju

piss4_1127325.jpgHér hofum við dásamlegt dæmi frá Noregi um frjálst einkaframtak, nýfrjálshyggju og skapandi frumkvöðlastarf. Maður verður hrærður af að setja sér fyrir hugskotssjónir athafnasemi, útsjónarsemi og elju hinna norsku hjóna sem hafa haslað sér völl í Sartor verslunarmiðstöðinni í Björgvin. Svo kom lögregluhelvítið, rammmarxíst, óþjóðlegt og skammarlegt, knúið áfram af öfundsýki og hóf afskipti af hinum vinnandi hjónum, sem hófu feril sinn með tvær höndur tómar, en vóru komin í góðar álnir, sona álíka og meðalkvótagreifi á Íslandi. Nú er hún Snorrabúð stekkur, hið opinbera lét sendisveina sína einkennisklæddar gjöra eignir hinna duglegu og góðu hjóna upptækar en lokaði þau sjálf inni einni af þessum svínastíum sem það kallar fangageymslur þar í Norðvegi.

Sem betur fer er ástandið ekki jafn djöfullegt á Íslandi eins og hjá Nossurunum. Hér sá talin mestur maður sem stolið hefir mestu á svínslegasta og lævíslegasta hátt; slíkir menn eru taldir sosialistar, jafnaðarmenn og félagshyggju- og samvinnumenn á Íslandi, því þeir leggja saman krafta sína til að ráða öllu, eiga allt og mega allt. Auðlindir, dómstóla, alþingi, ríkisstjórn og banka ásamt fjölmiðlum og fleira smálegu eiga þessar kempur skuldlaust; og þegar öfundsjúk misyndismenni kæra þá fyrir eitthvað lýkur soleiðis málum aðeins á einn veg: kærandinn er gerður ærulaus, auralaus og settur í fangelsi við fyrsta tækifæri. Í þokkabót hafa Íslendingar bætt þeirri rós í hnappagatið sitt að gjörast Trumpistar, sem auðveldar þeim mjög að rífa kjaft og halda fram staðleysum og heimskurugli eins og um heilagan sannleika sé að ræða. Á Íslandi ráða sannir Íslendingar ríkjum en ekki írski þrælalýðurinn, sem illu heilli fylgdu forfeðrum okkar til landsins á landnámsöld.

Það er gott að búa á Íslandi og til marks um það þá hafa þeir hleypt pestargemlingum með kóvíð nítjánda í stórum flugvélaförmum á landsmenn til að sýna þeim hvað Davíð keypti ölið og í leiða þeim fyrir sjónir hvur það er sem ræður Íslandi og á þennan hrjóstruga hólma norður í rassi. Á meðan við höfum það svona gott drepa frændur okkar í Noregi allt heilbrigt framtak og samkeppni niður með bros á vör; þeir munu uppskera eins og þeir hafa sáð til og það mun fara herfilega fyrir þeim áður en lýkur. Meiri bölvaður niðurrifslýðurinn atarna fyrir austan haf.


mbl.is Stórtækir búðaþjófar í Bergen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband