Leita í fréttum mbl.is

Hneykslisverk fullra manna og kvenna ætíð jafn áhugaverð

perv.jpgMikið óskaplega er gaman að lesa um hneykslisverk fullra manna og kvenna í fréttamiðlunum. Ég veit um mannaumingja sem bókstaflega rær í skininu af hreinni og tærri Þórðargleði þegar krassandi skammalegar sögur af ölvuðu fólki reka á fjörur hans. Hinsvegar vantar alltaf tilfinnanlega nöfn og heimilisföng raftanna sem skandalíséruðu; það ætti að vera skylda fjölmiðla og lögreglu að upplýsa almenning um nöfn fólks sem kemst í fréttir út af áfengiseitrun og ósæmilegu framferði henni tengdri.

Sjáið nú kvinnuna sem sagðist hafa læst sig inni á klósetti og ekki komist út. Það er eitthvað mjök so grunsamlegt við það mál allt. Getur ekki verið að kvinnan hafi skakklappast blindfull heim til sín, jafnvel skríðandi, ekki séð til að stinga lyklinum í skráargatið sökum ofneyslu áfengis og troðið sjálfri sér inn um klósettgluggann í staðinn og komið þar að læstum salernisdyrum? Jú, það gæti bara vel verið. Og hvað með ljóta karlinn í austurborginni sem sparkaði í lögregluprjóninn sem þóktist ætla að aðstoða hann? Getur ekki vel hugsast að hjálpsami lögregluprjónninn hafi líka verið þéttkenndur og ætlað að berja ljóta karlinn en sá ljóti hafi orðið fyrri til? Allt um það, þá var ljóti karlinn færður á stöðina og í höndur Hálfdáns Varðstjóra sem kenndi honum lífsreglunar.

Eitt sinn villtist frú Ingveldur í kafaldsbyl og kófi út á Seltjarnarnes, en þar vippaði hún sér innum klósettglugga á fallegu einbýlishúsi í eigu góðs fólks af Nesinu. Þannig háttið til þar á taðhúsinu að dyrnar voru læstar, en frú Ingveldur sparkaði þeim upp á augabragði og vóð síðan af hendingu inn í svefnhús hjónanna á bænum og þar hafði nú heldur verið galsagangur um nóttina. En þá frú Ingveldi bar þar að garði var svefnherbergisumsvifum hjónanna lokið og lágu þau berrössuð þvers og kruss í bælinu ásamt Kolbeini Kolbeinssyni, eiginmanni frú Ingveldar, í einkar athyglisverðri stellingu og línulegri afstöðu til hinna brennivínsdauðu hjóna. Síðar sagði frú Ingveldur um þennan atburð, að skjaldan hefði hún séð jafn andstyggilega afkáraleg hórdómssvín í einni sæng, enda voru bæði hjónin og Kolbeinn lengi að ná sér eftir meðferðina sem frú Ingveldur veitti þeim þar á staðnum, en sú meðferð var ekki fyrir venjulega aumingja. 


mbl.is Læstist inni á baðherbergi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Var frú Ingveldur nokkuð á leið í flug við þessar kringumstæður? Hún hefur þá vonandi haft það af að mæta í það eftir atganginn.

Þorsteinn Siglaugsson, 2.8.2020 kl. 22:40

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Nei, ekki rekur mig minni til þess, eða mér séu haldbærar heimildir um að frú Ingveldur hafi verið á leið í flug stax eftir gifturíka ferð hennar út á Seltjarnarnes.

Jóhannes Ragnarsson, 4.8.2020 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband