Leita í fréttum mbl.is

Matreiðsla mjaldra er vandasöm, hvað þá hvalsláturgerð og spaðsöltun

sundMjaldrar eru sérlega góðir til til átu og má búa til margvíslega rétti úr þeim. Ketið af þessum kvikindum er hvítt eins og kjúklingabringa og má tilreiða það bæði sem steik og soðningu elligar hakka þá í hamborgara. Nú þegar Vestmannaeyjar eru á leið í einangrun vegna kóvíðs nítjánda, sem vara mun næstu misseri ef að líkum lætur, munu mjaldramerarnar koma að góðum notum þegar fer að sverfa að og allar steikur af landdýrum búnar og fólk farið að leggja sér salernispappír til munns, því Eyjamenn eru frægir fyrir að vera alltaf vel birgir með kóséttpappír. 

Já, Vestmannaeyjar eru við það að verða Gúlageyjaklasi Íslands og píningarstaður. Brátt verður þangað sendur í útlegð Stjörnusýslumaðurinn Stones, fórnarlamb lúmskra efrimillistéttar- og yfirstéttarfémínísta. Þegar kemur að því að slagta mjöldrunum er eðlilegast að Stjörnusýslumanninum verði falið að lóga þeim og þá með eigin hendi. Við sjáum sem í draumi hr. Stones varpa sér í lúðrasveitarbúningnum til sunds í Klettsvík, væddur sveðju og pístólu. En þar sem kvenkyns mjaldrar eru illskeyttir og morðgjarnir verður Stjörnusýslumaðurinn að fara að öllu með gát og skjóta Litlu Gr. og Hvítu Gr. af óbifanlegri ró á milli augnanna, hvurja af annarri, helst ekki með meira en sekúndu millibili, og blóðga þær síðan með hárbeittri sveðjunni. 

Eitt sinn varð mannaumingja það á í ógáti að bínefna frú Ingveldi og Máríu Borgargagn Stóru gr. og Litlu gr. svo þær heyrðu. Þær vinkonurnar brugðust illa við og lögðu aumingjann í einelti og beittu hann ofbeldi, einkum kynbundnu ofbeldi og tókst með tímanum að gera ræfilinn kynóðan. Það var hræðileg saga. Úr mjöldrum er gott að gjöra sér hvalslátur og hafa spikið fyrir mör. Blómur af mjaldri, eða bara háhyrningi, er kóngafæða og var étin af dönskum og þýskum aðalsmönnum á fimmtándu öld og síðar. Á fornum bókum voru skráðar fyrr á öldum þjóðlegar uppskriftir af þjóðlegum réttum af mjöldrum. Því miður fórust flestar þessar uppskriftir á vondum heimilum, nema hvað Árna Magnússyni tókst að bjarga fáeinum í sama mund og hann bjargaði handritunum góðu frá eilífri glötun. Þegar sláturverkum verður lokið í Klettsvík og Stjörnusýslumaðurinn kominn í sparilúðrasveitarbúninginn sinn verður upplagt að draga handritið af matreiðslubók miðalda upp og finna kaflann um mjaldursrétti, hvalslátur og mjaldursiðraragú og setja að svo búnu potta og pönnur á hlóðir.   


mbl.is Mjaldrarnir komnir til Klettsvíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband