Leita í fréttum mbl.is

Sagan af pervertinum sem fróađi sér međ ekkert í höndunum

perOft hefir frú Ingveldur skemmt gestum sínum og eiginmanns síns međ sögunni af pervertinum sem hugđist hneyksla hana međ ţví ađ fróa sér fyrir framan hana en hafđi svo ekkert, ţegar til kom, í höndunum. Ţessi hugnćma saga er fyrir löngu orđin sígild í helgarsamkvćmum frú Ingveldar og Kolbeins, en áminnst helgarsamkvćmi eru eins og allir vita haldin eingöngu fyrir fínt fólk úr efrimillistétt og yfirstétt. Tildrög sögunnar um öfuguggann međ ekkert í höndunum eru mjög óljós, en taliđ er ađ međ frásögninni sé frú Ingveldur einkum ađ sneiđa ađ Brynjari Vondulykt og er hann nú í seinni tíđ farinn ađ vera heldur önugur undir ţeim lestri.

Gamli Kolbeinn Kolbeinsson, tengdafađir frú Ingveldar, varđ eitt sinn fokvondur ţegar frú Ingveldur var ađ segja söguna af pervertinum sem hafđi ekkert í höndunum og barđi til hennar međ járnstafnum sínum. En frú Ingveldur stóđ klár á ţeim gamla, ţví hún ţekkir sitt heimafólk, og vék sér fimlega undan, ţannig ađ höggiđ geigađi og hafnađi í höfđinu á Indriđa Handređi sem féll ţegar í stađ í öngvit. Upp úr ţessu urđu heilmikil slagsmál ţar sem gamli mađurinn sýndi enn og aftur ađ hann er aunginn veifiskati, ţví hann steinrotađi fimm manns á augabragđi, ţar af ţrjár konur, og veitti enn fleirum sár og önnur meiđsl međ járnstafnum.

En fyrst pervertur frú Ingveldar hafđi ekkert í höndunum ţegar hann fróađi sér í hennar viđurvist ţá er ekkert undarlegt viđ ađ ađrir gjöri slíkt hiđ sama ţegar ţeir vađa fram á völlinn, öđrum til ađvörunar og sjálfum sér til viđvörunar. Ţađ verđur mjög skemmtilegt ađ fylgjast međ átökum Helga og Samherjanna, en sú uppákoma sem nú er hafin er sannarlega vel ţegin í fásinni kóvíđs nítjánda og eiga ţeir sem ađ skemmtuninni standa ţakkir skyldar fyrir óeigingjarna fórnfýsi viđ ađ gleđja landa sína međ tiltektum sínum opinberum. 


mbl.is Helgi hafi ekki haft nokkurn hlut í höndunum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband