Leita í fréttum mbl.is

Hann getur engum skemmt, - en Borgargagnið er siðbiluð nærbuxnafrenja

femma3Hvað ætli hann geti skemmt nokkrum. Maðurinn er frægur fyrir öskur og óhljóð og síðan ekki söguna meir. Meira að segja frú Ingveldur kastaði kertastjaka í sjóvarpið þegar þessi þokkapiltur birtist áðan á skjánum og þar fór það. Nú er Kolbeinn eiginmaður frú Ingveldar kominn á fullt við að útvega annað sjónvarp í stað þess mölbrotna og ónýta; hann hefir haft upp á drukknum forstjóra stórrar rafurmagnstækjaverslunnar og beðið hann að opna búð sína og selja sér eitt stórt og gott sjónvarp, sem má vera fokdýrt. En meðan sjónvarp frú Ingveldar liggur í því næst þúsund molum á stofugólfinu heyrast ekki grenjin og óhljóðin í þessum Helga, það held ég geti fullyrt.

Í dag kvað svo frú Ingveldur upp úr með það, að vinkvendi hennar, Máría Borgargagn væri það sem maður segir ,, nærbuxnafrenja", en þó öllu heldur nærbuxnalaus frenja og að sama skapi siðlaus og ófyrirleitin í neðanbeltismálum. Að sjálfsögðu þykir frú Ingveldi fyrir því, að hafa umgengist slíkan kvenligan dólg í öll þessi ár og meira að segja leyft Borgargagninu að fá Kolbein lánaðan til brúks endrum og sinnum. Verst þykir þó frú Ingveldi, að Borgargagnið skuli á síðari tímum ævinnar tekið að sér þennan kynóða og lævísa Indriða Handreð, sem aunginn veit í raun og veru hvað kynhneigð hefir að geyma í heila sínum og iðrum. Hún hefði allt eins getað boðið Sathani sjálfum upp í til sín, tæfan sú arna.

En tómleikarnir hans Helga eru bölvað prump, og það leggur af þeim fýluna upp á Hellisheiði og austur í sveitir. Þessi fjandi er ekkert skárri en ,,nýja stjórnarskráin" krataeðlissjúklinganna. Og fyrst minnst hefir verið á krataeðlisstjórnarskrána, er rétt að segja frá því að hópur slíkra sjúklinga hrasaði í géðrof þegar þau reyndu að koma ,,stjórnarskránni sinni" á loft með sænskkynjuðu hópefli og sálmasöng. Það er búið að sprauta aumingjana svornu aftur og aftur í blágörnina með fínustu inngjafarlyfjum, en ekkert dugir. Það er ekki, skal ég segja ykkur, tekið út með sældinni að vera krataeðlissjúklingur.

 


mbl.is Helgi Björns skemmtir þjóðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband