Leita í fréttum mbl.is

Stórvandræði með forseta í Bandaríkjunum og á Íslandi

Capitalist_pig-690x580Þá eru blessuð forsetahjónin í USA bæði komin með skitupest af kóvíð nítjánda stofni og komast ekki milli herbergja nema með bleyju svo ekki hellist nú niður af þeim á gólfin. Þetta er afar vont mál og hvur veit nema vírusinn komist í höfuðið á Trumpinu og gjöri þar afleitt ástand blátt áfram djöfullegt. Lengi vel var Dónald ekki kóvíðnítjándatrúar og vísaði sögum um drepsóttina frá sér sem hvurjum öðrum lygum og hræðsluáróðri; þetta væri í mesta lagi dauf smá-kvefpest, kverkaskítur.

Síðastliðinn vetur veiktist einn dyggasti stuðningsmaður Trumps á Íslandi, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður af kóðvíði nítjánda og drapst næstum því af pestinni. Hann gerði í sig í öndunarvélinni, talaði tungum og sagði fjálglega frá fjölbreytilegu ástarkynferðislífi sínu og frú Ingveldar og fleiri sæmdapersóna í óráðinu. Þetta máttu hjúkrunarkonurnar á Landspítalanum hlusta á í marga sólarhringa og sumar þeirra gengu af vitinu af að heyra slík yfirgengileg bersöglismál í klámi og klúrum athugasemdum og dvelja nú á Kleppi. Ennfremur þjáðist Kolbeinn af þrálátri standpínu og áráttu til að viðra gandinn í kvenna viðurvist meðan hann dvaldi að öndunarvélinni og kenndi um ísmeygilegum bylgjum frá mótornum sem knýr vélina áfram Af þessu getur fólk séð hve undurslæmur og hættulegur sjúkdómur kóvíð nítjándi er og ekki á færi Trumpara að sleppa við skakkaföll ef þeir sýkjast af honum.

Og ekki má gleyma garminum honum Katli, það er að segja forsetamyndinni okkar hér uppi á Íslandi. Það er nú meiri labbakúturinn. Í gær vafraði þetta niður í þing eins og gemlingur í óráði og þvaðraði fordæmalausa vitleysu og kjaftabull. Meðal annars grenjaði hinn þurrpumpulegi forsetasteggur okkar um yfirskilvitleg fyrirbæri eins og þetta sem grillufangarar kalla ,,nýju stjórnarskrána" og eitt vitleysislegt landráðaplagg með ákvæði fyrir krataeðlissjúklingana um fullveldisafsal og lítt dulinn landsöluboðskap. Þó segja megi að Bandaríkjamenn séu óheppnir með forseta, þá erum við Íslendingar ekki síður ólánsamir með okkar forsetadraug. Trúlega var hið kostulega hjal forseta Íslands í Alþingishúsinu í gær aðeins sjúkdómseinkenni sem fylgja kóvíð nítjánda en ekki bein merki þess að þessi Bessastaðakurfur sé ekki endanlega hrokkinn upp af standinum.


mbl.is Trump-hjónin með COVID-19
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband