Leita í fréttum mbl.is

Vinsæl löggæslufrauka sem nýtur lýðhylli lendir milli tannanna á grimmu þingkvendi

ill2Óttaleg leiðindatrunta getur hún Þórhildur Sunna verið að láta sig hafa að agnúast út í vinsælan lögregluprjón, kvenkyns, og jafnvel bregða hinni vel látnu lögreglukonu um orðræðu, rasisma, fasisma og ofbeldishyggju. Að vísu er vinsæla löggæslufraukan vel merkt, að hætti skrautgjarnra sundurgerðarpersóna, en er það ekki bara allt í lagi? Ekki að mati Þórhildar Sunnu, sem er mikið í orðræðunni og hugsar í samtali og verkferlum. Hvað hún vill svo gera við vinsælu lögreglukonuna er oss með öllu hulið.

Hálfdán Varðstjóri er ákaflega upp með sér að hafa hina dáðu Anítu lögregluprjón í varðsveit sinni og gefur henni besta vitnisburð. Eitt sinn fór hún að stilla til friðar á einkaheimili, en þar lenti hún í hasar við brjálaða kérlíngargálu, sem búin var að dauðrota eiginmann sinn, þá að var komið. Hin tryllta kona hugðist fara eins að við Anítu og karlinn sinn, en Aníta varð fyrri til, sleit borðfót úr timbri undan stofuborðinu og laumaði honum ákveðið í höfuð kérlíngar, sem valt útaf og bærði ekki á sér. Úti í lögreglubifreiðinni sat Hálfdán Varðstjóri undir stýri og dreypti á volgu rommi sem hann geymdi inná sér og hlustaði á graðhestahljómlist í útvarpinu. Það lyftist því heldur á honum brúnin, þegar útdyr hússins, sem lögreglan hafði verið kvödd að, opnuðust og Aníta, sem nýtur lýðhylli, kom út og dró ljótu, rotuðu kérlínguna á eftir sér á hárinu. Þetta vóru nú tiltektir sem Hálfdán Varðstjóri kunni að meta og verðskulduðu, samkvæmt hans áliti, þykkan aukabónus í launaumslagið.

kolb13Frú Ingveldur gefur vinsælu Anítunni líka góð meðmæli, ekki síst eftir að Aníta skilaði Kolbeini, eiginmanni hennar, illa til reika heim á þriðjudagsmorgni, en þá hafði Kolbein, ódámurinn sá arni, verið gersamlega horfinn síðan á sunnudagskveld. Það er einkum vakti gleði frú Ingveldar yfir skilvísi Anítunnar var sú staðreynd að þessi fræga og vinsæla lögreglukvinna teymdi Kolbein Kolbeinsson í bandi á eftir sér eins og hund. Þegar Kolbeinn sá eiginkonu sína mikilleita í dyrunum þá ýlfraði hann. Svo kom upp úr kafinu, að Anítan hafði fundið Kolbein í alræmdu hjallgreni í svo vafasömum félagsskap, að maður sem bæði er skrifstofustjóri og framsóknarmaður, gæti beðið alvarlegan hnekki af, ef fréttist út á meðal múgsins, að hann hefði fundis lítt klæddur, og í dónalegum athöfnum, í þeim óhrjálega stað.   


mbl.is „Táknmynd lögreglunnar sem refsandi afls“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband