Leita í fréttum mbl.is

Á að leyfa þessum giljagaurum, blóðugum upp fyrir haus, að reisa sér árásarstöðvar hér á landi?

war3.jpgHvað vill þessi giljagaur upp á dekk? Flotaforingi úr djöfullegasta árásarher heimsins að boða ,,varanlega viðveru" þessa sama hers, sem er ekki aðeins blóðugur upp að öxlum heldur upp fyrir haus eftir óteljandi valdarán og valdaránstilraunir. Fyrir mína parta afþakka ég ,,viðvarandi viðveru" slíkra óþokka á Íslandi. 

Eflaust rjúka einhverjir landar mínir úr stétt auðkeyptra smámenna upp við þruglið í þessum Burke flotaforingja og hefja áróður fyrir nauðsyn á ,,viðveru" bandaríska herveldisins á Íslandi og messa með helgislepjuværð yfir fólki um áskoranir, framtíðatækifæri, hagvöxt, fjárfestingar, ,,skyldu okkar" við nánustu vini okkar og NATÓ. Dýpara er varla hægt að sökkva í aumingja- og heimóttarskap, auðsveipni og hundseðli. Og þá mun bleik brugðið, ef krataeðlisófétin munu ekki standa þétt upp við heimsvaldasinna og vestrænt stórauðvald þegar hin úrkynjaða, íslenska burgeisastétt tekur á móti hinum alblóðuga her USA.

Og hverju ætlar VG, Álfheiður, Stenngrimur Johoð, Swabbóliðið og Katrín Jakobs svara vangaveltum herra R. Burke flotaforingja? Ætla þau að láta sem þau hafi ekki heyrt í karlinum? Jafnvel að bjóða hann velkominn með allt sitt hafurtask til Íslands og leggjast sjálf í ellinni á hernaðarspena Bandaríkjamanna og NATÓ; það væri svo sem eftir öðru hjá þeim.   


mbl.is Skoða varanlega viðveru Bandaríkjahers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband