Leita í fréttum mbl.is

Nú ćtla hin óarga dýr ađ ganga frá öđlingnum og samkvćmisljóninu Bjarnaben

x31Hananú. Ţá eru helstu vindbelgir og flóđhestar ţjóđarinnar komnir á flot og stefna hrađbyri til Engeyjar ţeirra erinda ađ hrekja blessađan öđlinginn hann Bjarnaben í sjóinn og berja á hans kćru ćttingjum í leiđinni sona í tilefni jólanna. Hin ólmu villudýr munu eflaust ekki láta ţar stađar numiđ, heldur ćtla ţeir síđan sameinast Jólakettinum og Grýlu gömlu í ađ hrella og eta landsins bestu börn.

Og fyrir hvađ ćtla hin óarga dýr ađ eta Bjanaben? Jú, ţau hyggjast eta hann upp til agna af ţví ađ hann hefđi í staupinu međ vini sínum í gćrkveldi, ţađ var nú allt og sumt. Ţetta byrjađi allt í gćrkveldi, andskotar Bjarnaben höfđu njósnađ um hann frá ţví fyrir hádegi og ţegar hann heimsókti vin sinn hringdi ţađ á lögregluna. Já, ţađ hringdi meira ađ segja beint í Hálfdán Varđstjóra og bađ hann taka Bjarnaben fastann fyrir ölvun og óspektir í ólöglega fjölmennu samsćti betri borgara. Ţannig var nú ţađ. Ţetta kvađ víst vera svo alvarlegt drykkjulćti Miđjúnganna í klaustrinu bliknar viđ hliđina á meintu óforsvaranlegu athćfi Bjarnaben í Ásmundarsalnum. Aumingja vsleing karlinn.

Og bölvađur asninn hann Hálfdán lét glepjast af áróđri óvinanna og stökk til og leiddi Bjarnaben á brott í handjárnum. Sjónarvottar segja ađ ţađ hafi veriđ fullkomlega átakanlegt ađ horfa á ţegar lögregluprjónarnir komu međ ţennan undurgóđa dreng út og Hálfdán Varđstjóri rak á eftir međ ţví ađ dangla í rassinn á honum međ priki. Ţessi frumlega sjón minnti sjónarvottinn, minn heimildamann, óhuggulega mikiđ á ţegar böldnum pörupilti hefir veriđ faliđ ađ reka á eftir geldri mjólkurkú út á blóđvöllinn til slátrunar. Ađ vísu fer ekki miklum sögum af yfirheyrslum Hálfdáns Varđstjóra yfir Bjarnaben í nótt, - ekki ekki ennţá. En undir hádegi tókst Varđstjóranum ţó ađ kremja afsökunarbeiđni upp úr hinum handtekna og Hálfdán Varđstjóri lét ađ ţví búnu Stjörnusýslumanninn Stones og fleiri borđalögđ stórmenni fylgja hinu iđrandi samkvćmisljóni, Bjarnaben, heim á leiđ. 


mbl.is Máliđ grafalvarlegt og „afsagnarsök“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband