Leita í fréttum mbl.is

Þenur brjóst og sperrir stél svo heimurinn sjái hvað hann er góður

x34Það er naumast hvað Proppi litli undanrennusteggur vill að fólk haldi að hann sé góður. Hann ætlar skohh ekki að segja ljótt um nokkurn mann og koma þannig í veg fyrir að misyndismenn sleppi ekki fram af sér beislinu og grípi til illra verka. Fyrir síðustu kosningar var Proppi litli spurður að því á förnum vegi af róttækum kjósanda hvort hann og VG ætluðu í ríkisstjórn með Sjálfsstæðisflokknum. Við þetta tækifæri sperrti Proppi venju fremur út fuglsbringuna á sér og hallaði meir en í meðalári undir flatt og sór hátíðlega að aldrei mundi hann eða VG fara í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Það vita víst allir hvernig efndirnar voru á loforði Proppa, það var ekki hundaskítsvirði þegar til kom. Það er ekki nema von að VG-Proppi stilli sér í dag upp á háum hól eins og hlandkanna, þenji brjóst og sperri stél og vilji að allur heimur sjá hvað hann er undurgóður.

Og Proppi og Flokkseigendafélag VG gerðu meira en að leggjast í ósæmilegan hórdóm með Sjálfstæðisflokknum heldur var gamla Framsóknarmaddaman, vergjörn og vitlaus, dregin upp í bælið líka. Ef þessar skringilegu aðfarir Proppa góða og VG, ásamt svikum þeirra að loknum kosningum, eru ekki ígildi þess að segja fólki að ,,fokka sér", þá vitum vér ekki hvað þetta andskotans ,,fokkasér" þýðir. Já, Proppi litli og eigendur hans í Flokkseigendafélagi VG eru lítilsigldir garmar, ómerkilegir, svikulir og skaðlegir andlegri heilsu þjóðarinnar.

Eru það góðir menn sem lofa örfáum dögum fyrir kosningar að fara ekki í stjórn með Íhaldinu og eru skömmu síðar komnir í stjórn með sama Íhaldi? Er það gott fólk sem stelur heilum stjórnmálaflokki og gerir hann að viðsjárverðu endemi? Er það gott fólk sem lýgur sig inn á kjósendur 2009 og flæmir síðan upp undir helming þingflokks VG á brott á afar grófan og óheiðarlegan hátt? Er Stenngrimur Johoð og Flokkseigendaklíkan sem rændi VG með húð og hári virkilega gott fólk? Getur það verið? 


mbl.is Segir fólki ekki að „fokka sér“ í opinberri umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

"Góða fólkið" klikkar ekki!!

Sigurður I B Guðmundsson, 3.2.2021 kl. 16:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband