Leita í fréttum mbl.is

Tímamótasamningur til lausnar deilu frægra hjóna

kuk.jpgÞað var líka tímamótasamningur þegar Hálfdán Varðstjóri fékk Kolbein Kolbeinsson til að falla frá kæru á höndur eiginkonu sinn, frú Ingveldar. Tildrög þessa máls vöru á þá leið, að Kolbeinn kom alveg óvart að konu sinni í örmum annarrar konu. Svo mjök brá Kolbeini, að hann hljóp af vettvangi á harðaspretti; var það hlaup stjórnlaust og allt var í hrærigraut í höfði hans. Loks kom þar að, að hann vóð inn á Barnastofu og kærði eiginkonu sína fyrir kynvillu. Af hverju hann leitaði til Barnastofu með kæruna er enn óráðin gáta og hafa þó margir lagt sig fram um að ráða hana, en án árangurs.

Þeim hjá Barnastofu brá ansi mikið í brún við heimsókn Kolbeins og fyrst í stað var þeim skapi næst að leggja höndur á segginn, berja hann og varpa honum út í rennusteininn. Von bráðar hurfu þó stofumenn frá því að misþyrma hinum flaumósa manni og tóku í staðinn að inna hann eftir hvort frú Ingveldur væri með ólögráða ungling í takinu. Kvað Kolbeinn þvert nei við því, hann hefði bara komið að kerlíngarandskotanum uppi í bæli með Máríu Borgargagni, þeirri óbetranlegu óvelsæmisdrós. Það varð því úr, að þeir þarna á Barnastofunni tóku Kolbein með sér út í bifreið stofununnar og óku honum á fund Hálfdáns Varðstjóra, en hann er sem kunnugt er sérfræðingur í flóknum legorðsmálum.

Það var heldur ekki komið að tómum kofunum hjá Hálfdáni Varðstjóra, því hann brá hart við og sendi víkingasveitina á frú Ingveldi og Borgargagnið og bauð henni að taka þær fastar. Af þessu öllu spunnust ákafar erjur milli Kolbeins annarsvegar og frú Ingveldar og Máríu Borgargagns hinsvegar; Kolbeinn harðneitaði að draga kæru sína til baka, en eiginkona hans og hennar vinkona kærðu Kolbein á móti fyrir mannorðsmorð, hnýsni og spjöll gegn friðhelgi einkalífsins. Að lokum var málið leyst fyrir milligöngu Hálfdáns Varðstjóra með tímamótasamningi.


mbl.is Tímamótasamningur um leigu á Grímsá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband