Leita í fréttum mbl.is

Það er svo gaman

WC2Alltaf er jafn dásamlegt að fá jákvæðar og góðar frétti af samhentum og samlyndum hjónum. Þegar talað er um fyrirmyndarhjón, þá hafa sæmdarhjónin Meghan og Daryl sannað með framgöngu sinni og framferði, að þau eiga heima í úrvalsflokki fyrirmyndarhjóna. Að reisa tvær kosettskálar, hlið við hlið á taðhúsinu, er dæmi um yfirþyrmandi ást tveggja elskenda, sem leggja allt í sölunar til að öðlast hina absólútu samlíðan, en hún er sjálfur grundvöllur alheimsfullnægingarinnar, sem rýkur með hjón af þessu tagi eins og eldibranda upp úr þakinu á sjöunda himni og úti í víðáttur stjörnukerfanna.

Já, hönd í hönd sitja þau á salernisskálunum og rembast og tveir væmnir óþefir mætast, blandast saman, og liðast upp í nasaborurnar á eigendum pestanna. Meira að segja Brynjar Vondalykt, sem ætíð er sparsamur á lofgjörðir um um annað fólk, segir að þau Meghán og Daryl séu einstaklingar sem kunna að búa sér til sanna ást. Reyndar sagði Vondalyktin frá því í leiðinni, að stórvinir hans, hjónin Máría Borgargagn og Indriði Handreður, hafi eitt sinn farið inn til sín að sofa eftir stutta, en snarpa og leifturfjöruga drykkju og vaknað morguninn eftir til þeirrar staðreyndar að hafa bæði gert í sig meðan þau sváfu. Jafnframt fullyrti Brynjar Vondalykt, að ást hjónanna hefði dafnað og þroskast við þennan atburð. Þessa sögu af þeim hjónum hefir Vondalyktin sagt fjölda manns og aldrei gleymt að taka fram að sagan sé dagsönn og áreiðanleg, enda hafi hann sjálfur verið vitni að því þegar Handreðurinn og Borgargagnið vöknuðu þennan örlagaríka morgun. Enn sem komið er hafa hjónin ekki haft veður af söguburði Vondulyktarinnar um þau, en þegar það gerist munu þau fara aftan að sögumanninum og höggva höfuðið af honum með sveðju, - sömu sveðjunni og klausturkempan og miðfótungurinn Biggi kirkjueigandi rak í gegnum bakið á reglubræðrum sínum á Klaustri.

Skáld fyrri tíma kunnu og nokkuð fyrir sér um þá hjartans heitu og umfram allt sönnu ást, sem umlykur einlægt góð hjón eins og Meghán og Daryl. Eitt af okkar tröllauknust þjóðskáldum fyrrihluta síðustu aldar, orkti til dæmis fagurt ástarljóð, sem annað tröllvaxið og stórbrotið tómskáld gjörði sönglag við. Þessi dásamlegi söngur varð oft þess heiðurs aðnjótandi, á síðustu öld, að vera ,,síðasta lag fyrir fréttir" á Ríkisútvarpinu. Og þegar Garðar Kristján Jóh. Hólm óperusöngvari upphófst sem nokkurskonar inngangur að hádegisfréttum og söng ástardraumsýn þjóðskáldsins og tómskáldsins, lagði allt vitiborið fólk frá sér hníf og gaffal og hlustaði frá sér numið og með hökuna niðrá bringu á hina guðdómlegu snilld sem er allri annarri snilld ofar. Umræddur söngur um ástina hefst á rismiklu erindi, sem þannig hljóð í drotins nafni og hinna fjörutíu riddara:

,,Það er svo gaman að kúka saman
og verða alv´eins og fífl í framan.
Það er svo gaman um gæðastund,
að gleðjast á kamrinum létt í lund. 
Og þótt við séum svo grá og guggin
og greddan hrópi á oss eins og skugginn,
þá elskum vér bæði þann ástarfund,
eins og lóðatík morauðan hund".    


mbl.is Kúka hlið við hlið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband