Leita í fréttum mbl.is

Vítisvélar og banatilræði

Fram til þessa hefir aungvri sálu dulist að sumir menn, já og sumar konur líka, hafa ósegjanlega hneigð til að bera sprengjur í vötn og vatnsföll og sprengja. Strákar hafa sprengt klósettskálar heima hjá sér í loft upp, vörubifreiðarstjórar sprengt hjólbara og ráðherrar sprengt hjónabönd. Seiseijá, það er mörg sprengjan og margt sprengiefnið.

sprengja7Nú eru þeir byrjaðir að sprengja vítisvélar í sundlaugum og sér vart fyrir endann á þeirri áráttu. Verri þykja samt þeir er lauma frá sér þvagi í sundlaugar og eru kallaðir úrhök þjóðar sinnar. Þá má ekki gleyma ketilsprengingunni sem varð hér um árið í fjósi Ólafs bónda, en Ólafur bóndi var framsýnn maður og kynnti upp hjá kúnum með hráolíufíringu. Allar létust kýrnar í sprengingunni en Ólafur bóndi fékk þær bættar ásamt fjósinu hjá vátryggingafélaginu. Það var ekki laust við nautgripasteikur á bæ Ólafs bónda þau misserin.

Svo tóku þau sig til og sprengdu Salalaug til Andskotans með manni og mús. Það var andstyggilegt hervirki. Það er eins gott að þessum þorpurum detti ekki í hug að sprengja upp péníngaskáp Kópavogsbæjar og stela öllum péníngunum, sem talið er að séu þar. Þá má og ekki gleyma þegar Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður laumaði veggtengdri rafurmagnsborvél ofan í baðkarið til frú Ingveldar, en með þessu tiltæki vildi hann freista þess að ráða eiginkonu sína af dögum. Skömmu áður hafði Kolbeinn staðið að misheppnuðu sprengjutilræði við frú Ingveldi; hann hafði grafið jarðsprengju niður í bílastæðið við hús þeirra hjóna meðan frú Ingveldur brá sér á bifreiðinni í verslunarleiðangur niður í bæ. Því miður fór allt úrskeiðis þennan dag, því ókunnug frú kom aðvífandi á jappanum sínum, hafði farið götuvillt, og hlammaði sér beint á jarðsprengjuna sem Kolbeinn hafði nýlagt. Síðan hefir lítið til konunnar og jappans sést. Vissulega var útlit fyrir að vel færi þegar Kolbeinn smeygði borvélinni í baðvatnið frú Ingveldar, því hún fékk glimrandi rafstraum í sig og hárið reis beint upp í loftið og þá ekki síður kviðskeggið en höfuðhárið. En það þarf meira en eitt rafurlost til að vinna á frú Ingveldi. Hún reis því upp úr baði sínu, ásýndar sem Þorgeirsboli og kastaði Kolbeini eiginmanni sínum af hendi út um baðherbergisgluggann eftir að hafa nærfellt kyrkt hann áður í greip sinni.  


mbl.is Sprengja sprakk í útilaug Salalaugar í gærkvöldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband