Leita í fréttum mbl.is

Hugsjónamađur og útvörđur frelsis og mannréttinda

kolb18.jpgHann er aunginn smá-hugsjónamađur og útvörđur frelsis og mannréttinda ţessi Arnar lögmađur og nýfrjálshyggjugrillufangari. Sannarlega stórt númer ţar á almannamćlikvarđa. Ţađ er bara ţađ fari ekki fyrir honum eins og hugsjóna- og ţjáningabróđur hans, sem fékk kóvíđ nítjánda í títuna og hefir legiđ viđ dauđans dyr síđan og ekki minnst einu orđi í legunni á frelsi, samkeppni, mannréttindi né sjálfstćđishugsjónina, hver fjandinn sem ţađ nú er. Ţjáningabróđirinn, sem fyrir ekki allöngu sperrti sig framan í heiminn eins og hani á fjóshaug og lýsti hástöfum yfir ađ kóvíđ nítjándi vćri ekki til, - ja, nema sem mjög vćgt kvef og illa ţađ, - hann hefir nú legiđ kjökrandi í fleti sínu um hríđ og beđiđ Guđ ađ hjálpa sér milli ţess sem hann hefir falliđ í skammarleg óráđsköst ţar sem hann hefir talađ og hagađ sér mjög óskynsamlega.

En nýfrjálshyggjulögmađurinn Arnar, sem auk annarra kosta er vonarstjarna Sjálfstćđisflokksins og í miklum metum hjá frú Ingveldi, hefir loks náđ svo langt ađ vera á barmi ţess ađ velta öđrum ţekktum mannkynsfrelsurum úr sessi og búa ţeim gröf í landi gleymskunnar. Ţađ er heldur aungvu líkara sem nýfrjálshyggjulögmenniđ ćtli ađ frelsa oss frá kóvíđ nítjánda á sama hátt og vér biđjum Guđ í Fađirvorinu ađ frelsa oss frá illu. Svei mér ţá ef ţarna er ekki nýmóđins mannkynsfrelsari í uppsiglingu, ţess albúinn ađ hugga hrćdda og smáđa frá villu sóttvarnarlćknis, Sorós, Bills Gates og Pfizer. Jamm, ţađ er ekki amalegt ađ hafa fóstrađ upp slíkan höfuđsnilling og frelsara án ţess ađ hafa haft hugmynd um ţađ. Miklir gćfumenn erum vér Íslendingar, ţví af hundingsspottum höfum vér langmest nćmi og mörg heilnćm eftirdćmi.

Já, eftir örfáa daga, jafnvel fyrir áramót, mun hinn heilagi nýfrjálshyggjufrelsari og lćknir, Arnar lögmađur og varaţingmađur, sem sölsađi undir sig tćpum fimm millionum króna í styrkjum til ađ sólunda í misheppnađ prófkjör hjá sjálfstćđisflokknum, lćkna oss og frelsa fyrir hérađsdómi undan drepsótt, sem aldregi hefir veriđ til nema í rassgatinu á ţessum Pfizer andskota og púkum hans. Ţau láta ekki ađ sér hćđa kraftaverkin úr Vallhöllu viđ Háaleitisbraut og Garđabć, enda hefir Sjálfstćđisflokkurinn einkaleyfi á verkfćrunum sem ţarf til nútíma nýfrjálshyggjukraftaverka.


mbl.is Láta reyna á lögmćti einangrunar fyrir dómi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband