Leita í fréttum mbl.is

Þeim opinbera dáraskap skulum vér hrinda á haf út

alf3Jæja, góðir landsmenn. Ætli sé ekki nóg komið af þessum opinbera dáraskap og smáborgaralega undirmálssnobbi sem orðuveitingafroðan á Bessastöðum er? Jú, víst er fyrir margt löngu komið nóg af slíku. Í mörgum tilfellum hafa orðuveitingarnar virkað eins og verið sé að hæðast að einhverjum litlausum beyglum, sem hafa ekkert annað til sakar unnið en að mæta til vinnu sinnar eins og vankaðir og syfjaðir sauðir, og fólkið úti í samfélaginu hefir hlegið að öllu saman og gert ónotalegt grín að aumingja orðuhöfunum. En satt að segja er orðuveitinganefnd, krossar hennar, fálkar og riddarar, helst til grátt gaman af hálfu hins opinbera, burgeisastéttarinnar og forseta Ísland, þegar öllu er á botninn hvolft.

Í þetta sinn voru tólf giljagaurar og báðum kynjum krossaðir á Bessastöðum, þar af voru einungis tveir, sem hugsanlega voru einhverra verðlauna verðir. Hinir tíu eru því miður fulltrúar þurrar meðalmennsku, moðsuðu og kannski einhverju þaðan af verra; þeirra raunverulegu verðlaun veður aldrei annað en hlátur og flím þjóðarinnar í þeirra garð vegna krossins sem kenndur er við blóðgrimman vargfugl og hengdur var utan á þau af fullkomnum dáraskap og asnaskap, mitt í borgarlegri uppdráttarsýki yfirstéttarinnar.

sund3Á þessari stundu er við hæfi að rifja upp orð Magnúsar heitins Kjartanssonar ritstjóra og sósíalista, en hann sagið eftir eina hlálega stórriddara- og fálkaorðuveitinguna, að áður fyrr hefðu ræningjar verið festir á kross, en í dag væru krossar hengdir á ræningja. Við orð hins ljóngáfaða ritstjóra Þjóðviljans mætti svo svo sem bæta því við, að auk ræningjanna væru krossar hengdir á landeyður og innantómar og vafasamar toppfígúrur fyrir ekki neitt. Já, kæru vinir, nær og fjær, ættum vér sem samfélagsheild ekki að einsetja oss, að hefja á nýju ári heiðarlega, markvissa og gefandi baráttu gegn öllum þeim uppskafningshætti, lágmennsku og blekkingaleikjum, sem haslað hafa sér völl og komið sér fyrir í þjóðlífi voru? Ættum vér ekki bara að gera það að áramótaheiti voru nú og hefjast handa við að hrinda borgaralegri ónáttúru á haf út eins og úldnum svínsskrokkum?    


mbl.is Tólf fengu fálkaorðuna í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband