Leita í fréttum mbl.is

Vér óskum Lilju Rafneyju góðs bata og vonum að hún stígi skrefið til fulls

xv9Eftir að hafa dvalist um hríð allfjarri Floksseigendafélagi VG, Swandeesý, Stenngrimi, Álfheiði og fleira firrtu fólki af því kalíberi, er sem Lilja kérlíngi Rafney sé byrjuð að afruglast. Það er engu líkara en einhverskonar andleg vakning hafi kveðið sér hljóðs í höfðinu á henni og hún sé að byrja að sjá hverskonar lið þetta er sem hún var orðin svo samdauna. Vér getum ekki orða bundist og óskum Lilju Rafneyju til hamingju með að vera farin að fá sjónina aftur og óskum henni góðs og varanlegs bata. 

Nú, hinsvegar hefir það legið lengi fyrir að Flokkseigendur VG væru vont fólk og andstyggilegt, sem býr samt yfir óhugnanlegum hæfileikum til að afvegaleiða fólk og ljúga sig inn á það með fagurgala og innantómum heitingum. Þetta kynduga lið hefir til dæmis á samviskunni að gera arfleyfð gömlu róttæku sósíalistana og verkalýðsbaráttumannanna að hlálegum skrípaleik og stuðlað að hraðfara niðurlægingu hugsjóna Einars, Brynjólfs, Lúðvíks og Guðmundar Jaka. Og ef svo vel mundi vilja til að Lilju Rafneyju muni aukast sjón og góður bati á næstunni, þá kemur ef til vill að því að hún sjái gegnum blekkinga- og óheilindaþoku flokkseigenda og undarennubjánanna í VG og taki hið nauðsynlega skref: Að skrá sig úr VG og segja Stenngrimi, Swandeesý, Álfheiði og katrínarundanrennunni að fara til fjandans. Og það mun Lilja Rafney hiklaust, ef hún sér líka að hún sé enn sá sósíalisti sem hún taldi fyrir daga VG-blekkingarinnar.

Já, vinir mínir og félagar. Það er mikið starf framundan hjá okkur róttækum sósíalistum, vinstrisósíalistum og vinum Karls Marx og Friðriks Engels. Fyrir það fyrsta verðum við að skilja sauðina frá höfrunum og kasta óþarfadrasli úr farangri okkar í eldsofninn. Þegar því er lokið er getur baráttan hafist fyrir alvöru við óvininn, þ.e. auðvaldssvínin og krataeðlisaumingjana. Þá verður sá heimskulegi rottuhalafrasi ómerkinganna, ,,vi, vi erum í poletik til að hafa áhrif" úr sögunni, því það hefir sýnt sig umrædd ,,áhrif" ganga aðeins út á að Flokkseigendur VG séu samherjar samerjanna og stofuhæfir í salarkynnum auðvalds og arðræningjastóðsins. En það verður talsvert verk að ná sósíalismanum úr klónum á flokksræningjum og hugsjónaþjófum og koma honum upp á þann stall sem honum ber.    


mbl.is Lilja gagnrýnir Svandísi harðlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband