Leita í fréttum mbl.is

Grátkérlíngar allara flokka nauðbeygðar til að sameinast í einum kerlingaflokki

grenjNú er svo komið að grátkérlíngar allra flokka verða sameinast í einum kvennaflokki, sem auðvitað mundi hafa efrimillistéttarfémínísma að leiðarljósi, þar sem ekkert karlkyns fengi að stíga fæti sínum inn fyrir dyr, og grénja þar og óskapast að vild sinni. Mér er sagt af félögum margra flokka, að að ekki sé lengur líft í þeim fyrir grátgjörnum kérlíngardólgum með harðlífi, sem hafi fyrir löngu misst alla stjórn á sér af frekju, móðursýki og uppgerð. Það er því best að sópa þessum efrimillistéttarsæknu fraukum saman á einn stað. En það færi að sjálfsögðu fyrir þeim kjökrandi flokki eins og Kvennalistanum sáluga, sem deyði sætlega úr ólund og þurrafúavitleysu.

Já, stúlkur mínar, ástandið er vissulega ekki gott og gengi konufólks í efristéttastreðinu á hverfanda hveli. Þegar við bætist að karlpeningurinn skuli í auknum mæli ætla sér krefjast lögreglurannsóknar þegar hann ófrægingargusur grátkérlínganna yfir sig. Í poletík á boðorð númer eitt að rannsaka aldrei rógburð og æruaðdróttanir; þannig sagði séra Árni prófastur Þórarinsson að Snæfellingar hefðu haft það í sóknum hans og farnast vel.

x15Á þessari stundu verður oss óhjákvæmilega hugsað til hinnar harmi slegnu frú I. Sæland, rauna hennar og sálarangurs. Henni ber áfallahjálp nú þegar, þegar óði dólgar norðanlands vega grimmt að grátkonum hennar á Akureyri. Þetta eru ruddamenni, ekkert skárri en Karlgauti sýslumaður og Ólafur haffræðingur Ísleifsson, sem gerðu garðinn frægan að Klaustri fyrir einhverju síðan. Það segir sína sögu að ómenni þessi skuli hafa farið að reyna við grátkonurnar með saurugum þuklhöndum sínum eftir að hafa kallað þær heimskar og geðveikar, ljótar og illþefjandi og eflaust fleiri óviðurkvæmilegum orðum. Hvur andskotinn ætli það sé sem dansar svona í hausnum á þessum hryllilegu kallabeyglum? 


mbl.is Gríðarlega mikil vanlíðan í forystu flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband