Leita í fréttum mbl.is

Sérstakur labbakútur í ólgusjó yfirgangshunda og karlægrar Maddömu

x29Meiri bölvaður labbakúturinn alltaf hreint þessi Katrín Jakobsdóttir. En það þarf enginn að vera undrandi á því, óheiðarlega vandræðafólkið í VG fann það út af lærdómi sínum miklum og innihaldsríkum, að best væri að gera skælbrosandi og brettandi, hugsjónalausan og skoðanasljóan telpugopa að formanni flokksins. Og eftirleikurinn var auðveldur fyrir Sjálfstæðisflokkinn og hans Engeyinga og samherja, sem eru einmitt líka samherjar Flokkseigendafélags VG. Já, vinir mínir og vitibornir félagar, það er margt í mörgu í ýlduvömbinni á spilltum stjórnmálafrekjum hér um slóðir.

Eins og vera ber, bregst Katrín í vörn fyrir subbuskap auðvaldakerfisins og misnotkun siðlausra yfirgangshunda á almannafé. Hvert sem litið er blasir við heimska, andstyggilegheit og óvirðing fyrir sameiginlegum eigum þjóðarinnar, - og VG trallar með eins og firrt trúðfífl og blábjáni. Hvað á það til dæmis að þýða að láta ríkissjóð borga upp byggingu Jóns Rúnars í Hafnarfirði með því að leigja hana til langs tíma undir Hafró, sem væri best geymd í gámi úti á Grandagarði. Það er svona álíka vitrænt og að láta ríkið greiða Landsbankanum, sem ríkið á, stórar fjárupphæðir fyrir að fá inni með starfsemi ráðuneyta í þessari monthöll péníngagéðsjúklinganna. Eða að fleyja að ástæðulausu miljörðum í rafbíladótið í stað þess að greiða með glöðu geði almenningssamgöngur Strætó á höfuðborgarsvæðinu og út um allt land.

Karl MarxÞað er ekki nema von að frú Ingveldur sé lögst í óyndi út af fábjánalegu bruðli stjórnmálafábjána, sem stjórnmálaflokkarnir skaffa kjósendum til að kjósa á þing og misfara með fjöregg þjóðarinnar. Við vitum öll hverskonar samtök Sjálfstæðisflokkurinn er, um hann þarf að setja ákveðin sérlög, en ég er ekki eins viss um að fólk geri sér grein fyrir því að Framsóknarflokknum er stjórnað af fjörgamalli Maddömu, sem fyrir löngu er orðin geggjuð og komin í kör af drykkjuskap, óeðli og péníngagræðgi. Þetta er sem maður segir voðalegt ástand, ef ekki ógurlegt. Meira að segja persónur eins og Máría Borgargagn og Indriði Handreður eru farin að tala fjálglega sín á milli um nauðsyn stórfelldrar þjóðfélagsbyltingar og fyrir skömmu keypti Brynjar Vondalykt sér á laun væna brjóstmynd af Karli heitnum Marx, sem hann geymir heima hjá sér í rammlæstum péníngaskápi. 


mbl.is „Dýr ráðstöfun“ en felur í sér hagræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sérstakt að ætla að koma áfrýjunardómstól fyrir í fyrrum höfuðstöðvum fyrirtækis sem hefur dregið fleiri saklausa borgara fyrir dómstóla en nokkurt annað hér á landi.

Hvað næst? Dýragarður í sláturhúsi?

Guðmundur Ásgeirsson, 30.9.2022 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband