Leita í fréttum mbl.is

Herra Haarde álítur þjóð sína samansafn fífla.

Hann er þrifalegur boðskapurinn hjá Geir Haarde þennan þjóðhátíðardaginn. Ennþá skal hausnum barið við steininn og kvótakerfið mært og lofað sem aldrei fyrr. Hvernig dettur þessum auðvaldsþjóni að slengja því eins og ekkert sé framan í þjóðina, að því sé ekki hægt að neita, að kvótakerfið sé það besta sem völ er á í heiminum. Það er greinilegt að forsætisráðherrann G. Haarde er þeirrar skoðunnar að almenningur sé fífl og ekkert nema fífl, annars hefði hann ekki látið svona reginheimsku út úr sér við opinbert tækifæri. Það vita aftur á móti flestir, að fiskveiðistjórnunarkerfið Íslenska er sægreifaelítunni hagkvæmt og rúmlega það, með tilheyrandi arðráni og subbuskap. Það voru menn eins og Geir Haarde sem færðu sægreifamafíunni fiskveiðiauðlindina til eignar, svo það er kanske engin furða þó sá dólgur noti hátíðarræðuhöld á 17 júni til að hampa óþverranum. Við skulum aldrei gleyma því eitt einasta augnarblik, að kvótakerfið hefur ekki skilað þjóðinni neinu nema vandræðum, ávinningur er enginn nema fyrir nokkra bíræfna kvótasjúklinga. En sjávarbyggirnar sitja eftir, rændar auðlindinni sem þær nutu góðs af um aldir. 
mbl.is Vandinn í sjávarútvegi eitt helsta úrlausnarefnið nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Íslendingar hinn almenni íbúi er huglaust fífl sem lætur stjórnvöld ráðskast með sig. Fáir þora að hreyfa mótmælum og eru þá einatt skotnir í kaf af fíflunum sem kunna ekki að varast lygi stjórnmálamanna. Já stjórnmálamenn kunna lagið á auðtrúa almenningi...Eftil vill breytist þetta með nýjum kynslóðum... Ef til vill...? En genin láta ekki að sér hæða.

Guðrún Magnea Helgadóttir, 17.6.2007 kl. 12:47

2 Smámynd: Valla

Já þetta er alveg rétt hjá þér, meiri skömmin af þessu kótakerfi, og þessum fíflum sem færðu sumum tuga miljóna á silfurfati. Ég skil eigin ekki hvernig það er hægt, en allt er nú hægt segi ég nú bara.

Valla, 18.6.2007 kl. 00:26

3 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Geir hefur nefnilega rétt fyrir sér.  Hann veit að við látum valta yfir okkur við erum of löt til mótmæla af alvöru.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 18.6.2007 kl. 11:09

4 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Davíð sagði þetta í frægri skálræðu innan um félaga sína í Sjálfstæðisflokknum "Fólk er fífl" og hjörðin hló og skríkti.

Hann bætti svo við "95% af öllu fólki hugsar ekkert vitrænt" og hjörðin hló enn meira.

Þá bætti hálfvitinn við "Ég segi ykkur þetta satt mínir kæru félagar" og hjörðin brjálaðist af hlátri.

Fyrir þetta einskæra framtak sitt hlaut höfðinginn gríðarlegt lófatak og lýðurinn rómaði snilli hans og gáfur.

Níels A. Ársælsson., 18.6.2007 kl. 11:28

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek hér undir hvert orð, og vil bæta við að ég er alveg steinbit að svonefndur sjávarútvegsráðherra skuli geta sýnt sig hér vestra.  Að hann skuli ekki kunna að skammast sín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2007 kl. 20:42

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég held satt að segja, Ásthildur, að sjávarútvegsráðherranefnunni sé í einhverju áfátt. Ég hef raunar aldrei botnað í frama hans í pólitík á Vestfjörðum, hvað þá á landsvísu. Og ekki er nafni hans á Flateyrinni til muna skárri. Þvílíkir bölvaðir froðusnakkar báðir tveir og leitt til þess að vita hvernig þessum mönnum hefur tekist kjafta sig inn á Vestfirðinga, kosningar eftir kosningar, með innistæðulausu snakki. 

Jóhannes Ragnarsson, 18.6.2007 kl. 22:43

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já sammála, ég held að það sé vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki stjórnmálaflokkur, heldur trúfélag. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.6.2007 kl. 19:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband