Leita í fréttum mbl.is

Árni og blábjánarnir í eyjagangaleik.

Ég er velta fyrir mér hvernig á því stendur að verið sé að eyða stórfé í könnun vegna gerð jarðganga til Vestmannaeyja. Það getur varla verið að þeir sem að þessum heimskupörum standa af hálfu ríkisins séu með réttu ráði - mér finnst eiginlega flest, ef ekki allt, benda til að svo sé ekki. Ef að Árni Johnsen og einhverjir blábjánar sem að honum standa hafa í alvöru áhuga á jarðgöngum milli lands og Eyja væri réttast að þeir borguðu umrædd göng úr eigin vasa en láti það vera að blanda sameiginlegum sjóðum landsmanna í þann fávitaskap. 


mbl.is „Álitamál hvort göng til Vestmannaeyja séu réttlætanleg"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag

Hvers konar hroki er þetta... það er verið að reyna finna lausn á framtíðarsamgöngum milli lands og eyja.. til þess þarf að rannsaka.. eigum við ekki bara loka á allar rannsóknir.. ef það er í lagi að taka geðþóttaákvarðanir um hvort eitthvað eigi að byggja eða ekki?

Eins og hefur ávallt fylgt fréttunum um þetta en yfirlett ekki skilst þá er ekki verið að biðja um 50 milljaraða úr vösum skattgreiðanda.. allar líkur á eru á því að EF svo að þetta sé það sem menn vilja þá er um einkaframkvæmd að ræða... það sem óskað er eftir er að ríkið standi við sínar skuldbindingar sem þetta sé þjóðvegur og haldi áfram að borga þann pening sem þegar er greitt fyrir samgöngur með herjólfi. 

Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag, 24.7.2007 kl. 17:51

2 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Jóhannes minn, óþarfi er nú fyrir þig að fara úr límingunum  vegna málsins. Ekkert er fast í hendi ennþá,  hver niðurstaðan verður. Satt að segja finnst mér við Eyjamenn eiga gott eitt skilið, ekki hvað síst frá landsbyggðinni. 

Þorkell Sigurjónsson, 24.7.2007 kl. 18:25

3 identicon

Ef þú lítur svona á málið er þá ekki alveg sanngjarnt að ólafsvíkingar, sem jú hafa verið háværir hvað varðar niðurskurð á þorskkvóti, fái engar úrbætur í sínum málum með mótvægisaðgerðum. KEMUR ÞAÐ EKKI ÚR VASA LANDSMANNA EINNIG. Allavega þegar menn geta ekki staðið saman og skoðað alla möguleika þá held ég að menn eigi ekki neitt skilið sjálfir.

Eyjamenn hafa skilað gríðarlegum tekjum til þjóðarbúsins vegna mjög öflugs sjávarútvegs, auk þess sem þaðan hafa komið öflugir athafnamenn sem látið hafa mikið rakna til landsins. Eyjamenn hafa aldrei að mér vitandi orðið brjálaðir vegna framkvæmda "uppi á landi" sem varðar samgöngur, allavega ekki eins og þeir hafa orðið fyrir af hálfu okkar landkrabbanna.

Reynir Svavar Eiríksson (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 18:33

4 identicon

Komment mitt má ekki heldur skilja sem svo að ég vilji að ólafsvíkingar fái engar betrumbætur í sínum málum, síður en svo. Ólafsvíkingar eiga allt gott skilið, aftur á móti greinilega ekki allir bæjarbúar þar.

Reynir Svavar Eiríksson (IP-tala skráð) 24.7.2007 kl. 18:35

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það vill svo til, að eftir að ég snaraði þessu innleggi á bloggið, heyrði ég sjálft eyjaundrið Á. Johnsen útala sig í útvarpinu um skýrslu Verkfræðistofu Sigurðar Toroddsen um jarðgöng til Vestmannaeyja. Er þar skemmt frá að segja að eyjaundrið talaði eins og sá er valdið hefur og sló um sig með aðdróttunum um að starfsfólk VST hefð litla hugmynd um hvað það væri að segja í umræddri skýrslu og lét að því liggja að það, starfsfólkið, væri fyrirfram á móti eyjagöngum. Það er af og frá að landsbyggðarfólk geti staðið saman um einhver egóflipp og rugl í atvinnueyjamanninum Árna Johnsen, það er á hreinu. 

Einkaframkvæmd hvað??? ... það mætti halda, samkvæmt Vinum Ketils Bónda, að jarðgöng í einkaframkvæmd séu ókeypis - eða hvað?

Jóhannes Ragnarsson, 24.7.2007 kl. 19:11

6 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Það er til ærinnar umhugsunar fyrir fólk almennt, að það virðist vera sem svo þegar að málefnum Eyjamanna kemur, að menn leyfa sér algjört skotleyfi á skoðanir Árna Johnsen. Staðreyndin er sú að enginn af öðrum ólöstuðum hefur kynnt sér málið betur en einmitt  Árni Johnsen. Þar af leiðir að hann hefur nokkurt forskot á marga aðra, þegar rætt er um samgöngur á milli lands og Eyja.

Þorkell Sigurjónsson, 24.7.2007 kl. 19:46

7 Smámynd: Geir Ágústsson

Ég tek fyllilega undir orð Jóhannesar, og leyfi mér að útvíkka þau:

Ef einhverjir hafa í alvöru áhuga á tiltekinni framkvæmd væri réttast að þeir borguðu umrædda framkvæmd úr eigin vasa en láti það vera að blanda þvinguðum tilfærslum á tekjum landsmanna í málið. 

Geir Ágústsson, 24.7.2007 kl. 21:50

8 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Teljumst við Vestmannaeyingar nú ekki lengur til landsmanna?

Þorkell Sigurjónsson, 24.7.2007 kl. 22:14

9 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Heimsendaspár um göngin

Áform um Hvalfjarðargöng settu eðlilega mark sitt á þjóðmálaumræðuna þegar við blasti að ráðist yrði í framkvæmdir. Margir lýstu ánægju með að göng undir Hvalfjörð væru loksins í sjónmáli og hlökkuðu til að losna við að aka fyrir fjörð í öllum veðrum. Aðrir voru neikvæðir, höfðu jafnvel uppi gífuryrtar heimsendaspár. Nokkur dæmi skulu tilgreind úr safni tilvitnana í skrif og ummæli andstæðinga Hvalfjarðarganga.

Friðrik Hansen Guðmundsson í samtali við fréttamann Útvarps 1. febrúar 1996, eftir fund Verkfræðingafélagsins um Hvalfjarðargöng:
"Það liggur bara alveg fyrir eftir þennan fund að mínu mati að menn vita hreint og klárt ekkert hvað þeir eru að fara út í. Það verður ekki ljóst fyrr en menn fara að grafa og bora og sprengja þarna niðri. Þarna eru misgengissprungur, berggangar, þetta er allt saman vatnsleiðandi berglög sem þarna eru á ferðinni og ef menn lenda í þessum göngum þegar það er verið að sprengja niður á við, þar verða menn að vinna í vatni og sprengja í vatni með vatnið alltaf á sér og ef menn lenda í miklum lekavandamálum eins og í Vestfjarðagöngum, sem getur vel komið þarna upp, að þá sér maður fram á að menn gefist bara hreinlega upp."

Friðrik Hansen Guðmundsson í fréttum Stöðvar tvö 1. febrúar 1996:
"Það síðasta sem við þurfum á að halda sem stöndum í útflutningi á verkfræðiþekkingu er stórbrotið klúður á heimavelli og ef illa tekst upp í Hvalfjarðargöngunum þá mun það varpa skugga ótrúverðugleika yfir alla íslensku verkfræðistéttina."

Friðrik Hansen Guðmundsson í fréttum Sjónvarps 1. febrúar 1996:
"Ég er að benda á það að eftir þeirri reynslu sem menn hafa erlendis frá þá geta menn lent í hverju sem er þarna ofan í jarðgöngum. Menn eiga þar á hættu að lenda í miklum lekavandamálum eins og menn lentu í í Vestfjarðagöngum. Menn eiga þar á hættu að lenda í vandamálum vegna jarðskjálfta ef þarna á sér stað jarðskjálfti. Það er alveg óþekkt hvað gerist í slíkum göngum sem þessum í jarðskjálfta í þessu bergi sem við höfum hér. Við erum að horfa upp á möguleika á verulegum stórslysum ofan í þessum jarðgöngum ef að þarna á sér stað árekstur ofan í þessum djúpu jarðgöngum. Þarna getur átt sér stað bruni, þarna getur átt sér stað slys og bruni ofan í þessum jarðgöngum að þá geta menn lent þar í gríðarlegum slysum og eins og málin blasa við og standa við sérstakletga eftir þennan fund hér í dag þá hefur ekkert komið fram sem að annað en að styrkja mig í þeirri trú að þarna geta menn lent í stórbrotnu klúðri sem að bitnar síðan á okkur öllum sem búum í þessu landi."

Gunnlaugur Þórðarson, lögmaður, í Morgublaðsgrein 20. febrúar 1996:
"Gerð ganganna mun án efa kosta mannslíf."

"Mér er ekki kunnugt um neinn íslenskan verkfræðing, tæknifræðing né arkitekt, en þeir vera að standa ábyrgir fyrir gerðum sínum, sem fæst til að taka ábyrgð á eða jafnvel mæla með jarðgöngunum."

Gunnlaugur Þórðarson, lögmaður, í Morgunblaðsgrein 29. febrúar 1996:
"Í þessu máli, sem svo mörgum öðrum milli íslensku þjóðarinnar og norskra stjórnvalda, gildir gamla máltækið "frændur eru frændum verstir". Það er dapurlegt að hugsa til þess að það mun enn, á sinn hátt, rætast í jarðgöngunum undir Hvalfirði."

Magnús Sigurðsson skrifar í DV 23. febrúar 1996:
"Þeir sem ég hef heyrt ræða göngin telja þau beinlínis óðs manns æði og það skipti verulegu máli að þau verði ekki að veruleika."

Ágúst Sigurðsson skrifar í DV 29. febrúar 1996:
"Hér er rennt blint í sjóinn, í þeirra orða fyllstu merkingu, með gerð ganganna og þau eiga því miður eftir að verða stór og mikil martröð allrar þjóðarinnar á komandi árum. Mótmæli verða því að koma fram."

Jónas Kristjánsson í forystugrein í DV 27. febrúar 1996:
"Til marks um þýlyndi Íslendinga má hafa, að engin samtök grípa til varna gegn Hvalfjarðargöngum. Fólk tuðar gegn göngunum í hornum sínum, en notar ekki samtakamátt til að koma í veg fyrir, að göngin verði að einni helstu martröð þjóðarbúsins á næstu árum."

"Ef Íslendingar væru ekki þýlyndari en aðrar þjóðir, létu þeir ekki rugl af þessu tagi yfir sig ganga hljóðalaust. Stofnuð væru samtök til að gæta hagsmuna skattgreiðenda og vegfarenda til þess að berjast gegn því, að vandræðin yrðu meiri en þau eru þegar orðin."

"Stofna þarf virk almannasamtök til að vernda viðhald og framkvæmdir við veginn fyrir botn Hvalfjarðar og hindra frekari ábyrgð skattgreiðenda á göngunum."

Ólafur Sigurgeirsson á Þaravöllum í samtali við Tímann 24. febrúar 1996:
"Þessi göng eru eitt mesta umhverfisslys landsins og stórskaði fyrir okkur hér og alla landsmenn. Göngin eiga eftir að verða dragbítur á þjóðfélaginu í áratugi og komast sennilega aldrei í gagnið."

Gunnlaugur Þórðarson snýr við blaðinu

Gunnlaugur Þórðarson, hæstaréttarlögmaður, var í hópi þeirra sem hvað harkalegast gagnrýndu áform um Hvalfjarðargöng á opinberum vettvangi og vöruðu við að "anað yrði út í" þessar framkvæmdir. Hann skrifaði greinar í Morgunblaðið, 20. febrúar 1996 undir fyrirsögninni "Þjóðardoði" og 29. febrúar 1996 undir fyrirsögninni "Hvalfjarðargöngin, Smugan og Mozart".
Gunnlaugi snerist hugur svo um munaði og hann vitnaði síðar í tvígang í Morgunblaðinu um ágæti Hvalfjarðarganga. Þann 25. október 1997 skrifaði hann grein undir fyrirsögninni "Að skjátlast er mannlegt" og rakti hvernig undirmeðvitund sín hefði rumskað þegar fréttir bárust um glæsilegan árangur við gangagerðina:

"Gat það verið, að baráttugleðin í fyrrgreindum blaðagreinum hefði leitt mig á villigötur? Og lét þetta mig ekki í friði. Ég varð að skoða verkið með eigin augum."

Gunnlaugur fékk síðan leyfi til að skoða Hvalfjarðargöng í fylgd Hermanns Sigurðssonar, verkfræðings og þáverandi staðarstjóra Fossvirkis í Hvalfirði. Eftir þá heimsókn skrifaði Gunnlaugur Þórðarson m.a.:

"Heimsóknin í göngin sannfærði mig um , að þar væri unnið stórkostlegt mannvirki, sem yrði þjóðinni lyftistöng og væri vottur þess stórhugar, sem ríkja ætti með íslensku þjóðinni."

"Öryggistilfinningin þarna neðanjarðar var dásamleg. Manndómurinn í verkinu er þeim, sem að því standa, til sóma. Í samræmi við áðurnefnt spakmæli hlýt ég að leiðrétta orð mín og hlakka til að fara um Hvalfjarðargöngin fullfrágengin norður á Húsavík að rúmu ári. Til hamingju Ístak og Fossvirki!"

tekið af spolur.is

Pálmi Freyr Óskarsson, 25.7.2007 kl. 05:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband