Leita í fréttum mbl.is

Bílnúmeravandamálið mikla

Það er hræðilega skelfilegt ef nýju þriggja stafa bílnúmerin eru svo svæsin að þau særa auðveldlega blygðunarkennd hjartahreinna borgara þessa lands. Þá er nú betur heima setið en á stað farið. Auðvitað er það voðalegt fyrir sannarlegt hetrósexúal karlmenni, af víkingaættum, að skrönglast um á bifreið með númerið GAY 6 eða GAY 17, eða HIV 10, eða HÝR 01. Slíkum mönnum henta áreiðanlega betur númer sem byrja á orðum eins og UXI, EXI eða API. Reyndar finnast mér orð eins og GAY, HIV og HÝR fráleitt dónalegri en t.d. LEG, GAT eða LÍÚ, að maður minnist nú ekki á KOT, ROT og POT, svo eitthvað sé nefnt. Annars held ég að best sé að fá sér einkanúmer eins og allt alminnilegt fólk gerir. Ég hefi, frómt frá sagt, lengi verið að hugsa um að láta til skarar skríða í þeim efnum, en get því miður ekki gert uppámilli númerana CASTRO, CHAVES, MARX, STALIN, LENIN, FIDEL, MAO, eða GUEVERA. Helst af öllu vildi ég þó að mín bifreið bæri kenninafnið FIDEL að framan, en CASTRO að aftan. En slíkt mun víst ekki vera leyfilegt, enn sem komið er.  


mbl.is Blátt bann við dónalegum bílnúmerum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ja hérna... allt er nú til

Jónína Dúadóttir, 15.12.2007 kl. 09:13

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

... nema að láta bílinn heita FIDEL að framan og CASTRO aftan ... En blessaðar þingmannsdulurnar okkar eru vonandi það mikilr bógar að kippa því í liðinn eftir áramót.

Jóhannes Ragnarsson, 15.12.2007 kl. 09:30

3 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

:)

Kjartan Pétur Sigurðsson, 15.12.2007 kl. 12:41

4 identicon

Sæll Johannes

Eg så ad Mao og Stalin komu til greina hjå ther sem bilnumer - en afhverju ekki Hitler ?  Hann var ad visu eins og aumasti byrjandi i samanburdi vid thå kappa Mao og Stalin, thegar kemur ad fjøldamordum og ognarstjorn, en samt...... Svo gleymdir thu lika Pol Pot.  En hann var kannski ekki nogu afkastamikill ?

Svo var annad - thu røkstuddir ekki hversvegna rikisrekid heilbrigdiskerfi er betra en einkarekid i svari thinu til min.  Eg var nu sjålfur ad hugsa um goda bløndu af einka og rikisreknu kerfi. En afhverju er einkarekid kerfi verra en rikisrekid ?

Þórarinn Jóhann Jónsson (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 18:05

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Heill og sæll Þórarinn.

Ríkisrekið heilbrigiskerfi hefur yfirburði við hliðina á einkareknu í félagslegu, siðferðilegu og fjárhagslegu tilliti. Það er bæði félagslega rangt og siðlaust, að hafa veikindi fólks að féþúfu í gróðabralli einstaklinga, auk þess sem það vegur gróflega að jöfnuði í þjóðfélaginu. Við skulum hafa það á hreinu, að fólk verður ekki veikt eða slasast af yfirlögðu ráði.

Svo væri ágætt ef þú getur bent mér á meint fjöldamorð Mao og Stalíns og hverjar heimildir þínar eru fyrir þeim og umfram allt hversu öruggar og sannar þær heimildir eru. 

Jóhannes Ragnarsson, 16.12.2007 kl. 19:49

6 identicon

Sæll Johannes

Eg gæti gert eins og thu og sagt " af thvi bara", og notad ordin felagsleg, sidferdileg og fjårhagsleg, ån thess ad røkstydja hvernig nidurstadan er fengin.  En eg tharf thess ekki.  Einkageirinn, thad er einstaklingar sem vilja skapa verdmæti fyrir sig og adra, eru mun hæfari til ad meta hvernig å få mest fyrir peninginn og skilja einnig mikilvægi thess ad veita besta møgulega thjonustu fyrir minnstan kostnad.  Rikid, thad er politikusar og embættismenn, eyda skattfe okkar ån thess ad thurfa ad hugsa um thessi atridi.  Hvort hefur thu fengid betri thjonustu hjå fyrirtæki sem verdur ad få thig sem vidskiptavin til thess ad få innkomu og er i samkeppni vid ønnur fyrirtæki um thig, eda hjå opinberri skrifstofu sem fær innkomu gegnum skattfe borgarana ?

Hvad vardar Stalin og Mao.  Eg vona virkilega ad thu sert ad grinast. Eg veit ad kommunisminn eru truarbrøgd og thå hafa stadreyndir litid ad segja, en eg ætla samt ad reyna.  Thu badst um thetta:

Mao tse Tung: Hu Yaobang tolfti leidtogi kommunistaflokks Kina, gagnryndi Mao fyrir hardstjorn og nefndi sem dæmi                "Stora Støkkid " ( 1959-1962 ). OPINBERAR TØLUR FRÅ KINVERSKA KOMMUNISTAFLOKKNUM SEGJA AD 20 MILLJONIR MANNA HAFI DÅID UR HUNGRI VEGNA THESSARAR ÅÆTLUNAR SEM MAO BAR ÅBYRGD Å.  Adrar tølur, reiknadar ut af medal annars kinverskum serfrædingum, segja ad allt ad 72 MILLJONIR kunni ad hafa farist ur hungri og sjukdomum vegna thessarar einu åætlunar.  Åttadu thig å thvi, ad thetta gildir bara um hid svokallada " Stora Støkk "  Thå eru otalin ønnur glæpaverk hins mikla Mao sem kostudu tugmilljonir kinverja lifid.

Stalin: Sjålfur Krutsjov gagnryndi Stalin hardlega fyrir grimmdarverk og fjøldamord å sovesku thjodinni.  Vegna thess ad plåssid leyfir ekki upptalningu å øllum glæpum thessara tveggja "manna", nefni eg her bara eitt dæmi:  Thegar Ukraina vildi få sjålfstædi, skipulagdi Stalin hungursneyd i Ukrainu, sem kostadi yfir 30 MILLJONIR KARLA, KVENNA OG BARNA LIFID.  Dmytro Tabachnuk rådherra i rikisstjorn Ukrainu hefur tilkynnt ad rikisstjornin muni låta reisa safn til minningar um thessi glæpaverk Stalins.

Annars er svo gifurlega mikid til af efni um hrodaleg glæpaverk Mao og Stalins, ad nånast hvert mannsbarn veit um thau.        (Sanntruadir kommunistar eru ad sjålfsøgdu undantekning) 

Þórarinn Jóhann Jónsson (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 12:42

7 identicon

Rett skal vera rett.... Hungursneydin i Ukrainu kostadi um 4-8 milljonir manna lifid.  Eg tok saman nokkur afrek Stalins ådur en eg valdi hungursneydina i Ukrainu sem dæmi um glæpi thessa manns. Eg var kominn upp i 30 milljonir og su tala for med i greinina.  En 4-8 milljonir er nægilega hå tala, eda hvad finnst ther ?

Þórarinn Jóhann Jónsson (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 16:38

8 identicon

Mig langar til ad benda ther å netsidu sem heitir FORUM A Ukrainian Review. Thar getur thu lesid vitnisburdi folks sem lifdi af thessar hørmungar, åsamt vitnisburdi annara.

Þórarinn Jóhann Jónsson (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 16:43

9 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Trúarbrögð segir þú - og getur trútt um talað. Ég sé ekki betur en þú nálgist stjórnmál með augum trúarofstækismanns. Það sem þú ert að rembast við að bulla um einkarekstur og félagslegan rekstur er einfaldlega þvættingur og varla svaraverður.

Það sem þú berð á borð um félaga Stalin og Mao er á sömu bókina lært; þ.e. óstaðfestar sögusagnir sem vesturlandabúar hafa ekki hugmynd um hvert sannleiksgildi hafa. Þetta eru semsagt flökkusögur sem hægrimenn hafa fellt inn í sitt geðslega og hræsnisfulla trúarbragðakerfi.

Jóhannes Ragnarsson, 17.12.2007 kl. 16:49

10 identicon

Sæll Johannes

Eg hef løngum sagt, ad ekki verdi tjonkad vid sanntruada.  Stadreyndir skipta engu, thegar truin er annarsvegar.  Thad å einnig vid nuna.

Hvad vardar venjuleg truarbrøgd, verdur ei ur skorid hver sannleikurinn er fyrr en eftir daudann. Hvad kommunismann vardar, er hægt ad komast ad sannleikanum um hann, med thvi ad flytja til Nordur - Koreu.  Thykir mer alltaf jafn einkennilegt ad folk sem dåsamar kommunismann og bølvar kapitalisma og lydrædi, skuli ekki flytja til kommunistalanda. ( theirra sem enn tora ).  En enginn hefur heyrt um neinn sem hefur fluid TIL Nordur-Koreu.  En aftur å moti eru margir sem hafa fluid thadan vid illan leik.  Hvernig skyldi standa å thvi ? :)  En thar sem ad thig skortir øll røk, og hefur vondan målstad ad verja, legg eg til ad vid låtum gott heita, og nemum stadar i umrædu thessari.  Eg vona bara ad thu takir sønsum - batnandi manni er best ad lifa.

Þórarinn Jóhann Jónsson (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 19:14

11 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Veistu hvað Þórarinn minn? Ég er löngu orðinn leiður á hundalógík af því tagi sem þú bíður uppá. Ég þekki alla þessa gömlu frasa úr kapítalismatrúnni mætavel og geri mér vel grein fyrir hve heiðarlegir þeir eru. Eins og þú eflaust veist hafa mörg hroðaleg illvirki verið framin í nafni kristinnar trúar. Þrátt fyrir öll þessi illvirki stendur boðskapur Jesú Krists ávallt vel fyrir sínu vegna þess að hann á ekkert skylt við framferði glæpamannanna. Sömu sögu er að segja um sósíalismann, kommúnismann.

Svo er rétt að minna á í lokin, að Jesús Kristur var kommúninsti í besta skilningi þess orðs. Sumir vilja meina að hann hafi jafnvel verið fyrsti kommúnistinn á okkar guðsvoluðu plánetu, en ég veit svosem ekkert um það.

Jóhannes Ragnarsson, 17.12.2007 kl. 19:56

12 identicon

Sæll aftur Johannes

Eg ætladi nu ad vera buinn ad slå botninn i thessa umrædu frå minni hålfu, en thad sem thu skrifar nu sidast, neydir mig til ad svara.  Thu hefur nefnilega å rettu ad standa bædi vardandi kristindominn og kommunismann sem kenningar.  Thad væri gott ad lifa i heimi her ef mannskepnan gæti fylgt kenningunum um frid, jafnretti og hjålpsemi gagnvart nåunganum.  En, eins og hann afi minn sagdi einu sinni vid mig:  Mannskepnan er meingøllud og eydileggur allt gott sem henni er gefid.  Thad å vid um bådar thessar kenningar, thvi midur.  Valdagrædgi, grimmd, personudyrkun og allskyns vidbjodur hefur fylgt thessum kenningum og eydilagt ålit mitt å bådum.  Kapitalismi er thad einasta sem virdist virka, vegna thess ad hann skilur mannlegt edli, sem er ad skara eld ad sinni eigin køku.  Sorglegt, en satt.

Þórarinn Jóhann Jónsson (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 15:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband