Leita í fréttum mbl.is

Framsóknarfélagið Guðjón Ólafur

Mikið vildi ég að Guð gæfi að einhverjir valinkunnir framsóknarmenn stofnuðu heiðarlegt stjórnmálafélag undir nafninu: Framsóknarfélagið Guðjón Ólafur. Ég er viss um að það myndi freista margra gáfaðra, frjálslyndra og víðsýnna einstaklinga að ganga í félag sem héti svo afgerandi nafni. En gáum að því, að félagar í Framsóknarfélaginu Guðjóni Ólafafi yrðu að ganga um með hlemm á bakinu og rassinum til verjast árásum ófyrirleitnra bakstungumanna sem alltaf eru á sjái í kringum Framsóknarfjósið. Og við skulum gera okkur grein fyrir að hinir blóðþyrstu bakstungubófar hlífa engum þessa dagana og svo eru þeir fólskir að þeir myndu stinga búrknífum sínum á kaf í rassgatið á sjálfri Maddömunni fengju þeir færi á.
mbl.is Mikið áfall fyrir Framsóknarflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Denny Crane

Nú hef ég aldrei komið til Ólafsvíkur en það hlýtur að vera fallegur staður sem elur góða drengi. Tökum þig sem dæmi, sómi, sverð og sköldur sannleikans, réttlætis og siðfræðinnar   Guðjón Ólafur þarf fleiri menn eins og þig.

Denny Crane, 26.1.2008 kl. 11:21

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er rétt til getið hjá þér, Denny, að Ólafsvík er fallegur staður sem elur af sér gott fólk. Þar af leiðir að Gujón Ólafur á sér formælendur fáa, ef nokkra, í Ólafsvík. Ég er t.d. nokkur viss um að ekki ein einasta sála hér um slóðir tæki að sér að gerast sverð og skjöldur umrædds framsóknarfrömuðar.

Að öðru leyti þakka ég þér fyrir að gefa mér einkunina ,,sverð og skjöldur sannleikans, réttlætisins og siðfræðinnar." Betri einkunn er ekki hægt að hugsa sér - en ég stend svosem vel undir henni, ekki vantar það.

Jóhannes Ragnarsson, 26.1.2008 kl. 12:56

3 Smámynd: halkatla

Guðjón Ólafur vill fá kutana í rassinn held ég, annars hefði hann ekki beðið um það... hann veit reyndar ekki að þegar við erum minnt á hann langar okkur bara að gleyma því, það nennir enginn að spretta upp hans rýra afturenda. Útsýnið yfir skottið á Birni Inga er miklu meira djúsí.

halkatla, 26.1.2008 kl. 13:30

4 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Guðjón Ólafur  er ótrúlega laus við kænsku, fyrir mér er hann bara heimskur.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 26.1.2008 kl. 14:36

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Jafnvel eins heimskur og sauðnaut ofan af Grænlandsjökli?

Nei, þvert á móti held ég að maðurinn sé stórgáfaður ekki síður en Einstein og aðrir af hans kalíberi.

Jóhannes Ragnarsson, 26.1.2008 kl. 17:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband